Viðskipti erlent

Shell stöðvar olíu- og gasleit á norðurslóðum

Atli Ísleifsson skrifar
Umhverfisverndarsinnar hafa mótmælt rannsóknum Shell.
Umhverfisverndarsinnar hafa mótmælt rannsóknum Shell. Vísir/EPA
Hollenska olíufélagið Royal Dutch Shell hefur stöðvað olíu- og gasleit sína undan strönd Alaska. Rannsóknir félagsins í Chukchi hafa valdið vonbrigðum og segir í yfirlýsingu frá félaginu að rannsóknum hafi verið hætt.

Shell segir að ekki hafi fundist nægilegt magn olíu og gass í Burger J holunni til að réttlæta frekari rannsóknir.

Félagið hefur varið um sjö milljörðum Bandaríkjadala, um 900 milljörðum króna, í olíu- og gasleit í Chukchi og Beauforthafi.

Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna áætlar að um þrjátíu prósent af ófundnum olíu- og gaslindum heims sé að finna á norðurslóðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×