Viðskipti erlent

Smokkasala hríðfellur í Kína í kjölfar afnáms einbirnisstefnunnar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Kínverji labbar framhjá smekkfullum smokkarekka í verslun í Peking.
Kínverji labbar framhjá smekkfullum smokkarekka í verslun í Peking. Vísir/AFp
Hlutabréf í fyrirtækjum sem selja bleyjur, barnavagna og hvers kyns barnaformúlur hafa hækkað mjög í verði eftir að kínverski kommúnistaflokkurinn tilkynnti fyrir helgi að landið myndi hverfa frá einbirnisstefnu sinni árið 2017. 

Að sama skapi hrundi verðið á bréfum fyrirtækisins sem framleitt hefur vinsælustu smokkana í Kína um árabil.

Fjárfestar eru nú að veðja á aukna sölu fyrirtækja sem sérhæfa sig í framleiðslu hverskyns barnavara en talið er að aukni slaki kínverskra stjórnvalda muni leiða til þess að 3 til 6 milljón fleiri börn fæðist þar í landi árlega. Áhrifin fundust jafnvel út fyrir landsteinana en gjaldmiðill Nýja Sjálands, sem flytur út mikið af mjólkurvörum, styrktist til að mynda um eitt prósentustig við tíðindin.

Í Kína, sem er fjölmennasta land í heimi en íbúar þess eru rúmlega 1.4 milljarðar, fæðast um 16.5 milljónir barna á hverju ári.

Einbirnisstefnunni var komið á í Kína árið 1979 sem liður í að sporna við fólksfjölgun en þá var víðtæk fátækt í landinu.

Credit Suisse telur að ákvörðun kínverskra stjórnvalda nú í vikunni gæti leitt til þess að einkaneysla í landinu aukist um 2500 til 4800 milljarða íslenskra króna, aukning sem nemur 4 til 6 prósentustigum.

Óumdeildur hástökkvari vikunnar á kínverskum mörkuðum er fyrirtækið China Child Care Corp. sem framleiðir hár- og húðvörur fyrir börn. Hlutabréfa verð í CCCC hækkaði um 40 prósent eftir að ákvörðunin um að hverfa frá einbirnisstefnunni lá fyrir.

Sjá einnig: Afnema lög um eitt barn

Japanski smokkaframleiðandinn Okamoto Industries vill þó líklega gleyma þessari viku sem fyrst en hlutabréfaverð í fyrirtækinu féll um 10 prósent á mörkuðum í Tókýó.

Barnaformúluframleiðendur í Hong Kong og á meginlandi Kína hækkuðu aftur á móti um 10 prósent.

Bréf í Goodbaby International, sem framleiðir barnabílstóla og kerrur, hækkuðu um 7.4 prósent á fimmtudag og um önnur 2.3 prósent daginn eftir.

Leiddar hafa verið líkur að því að stefna kínverskra stjórnvalda í barneignamálum verði tekin fyrir og útfærð á næsta stefnumótunarfundi fyrir komandi fimm ára áætlun.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×