Viðskipti erlent

Smokkafyrirtækin líða fyrir kínverskar reglubreytingar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Barnsfæðingum gæti fjölgað um margar milljónir í Kína á næstunni.
Barnsfæðingum gæti fjölgað um margar milljónir í Kína á næstunni. Vísir/EPA
Hlutabréf í fyrirtækjum sem framleiða bleyjur, kerrur og barnamjólk hafa hækkað verulega eftir að stjórnvöld í Kína tilkynntu um reglugerðabreytingar. Breytingin fólst í því að nú mega pör eignast tvö börn í staðin fyrir eitt áður. Reglan um eitt barn hafði gilt allt frá árinu 1979. Aftur á móti hafa bréf í fyrirtækjum sem framleiða smokka lækkað.

Áhrif af reglugerðarbreytingunum ná víða um heim. Til dæmis allt til Nýja-Sjálands. Sérfræðingar hjá fjárfestingabankanum Credit Suisse álíta að reglugerðarbreytingarnar feli í sér að barnsfæðingum fjölgi um 3 til 6 milljónir á ári allt frá árinu 2017. Í datg fæðast um 16,5 milljónir barna á einu ári.

Á vef Guardian segir að hugsanlega sé fjölgun barnsfæðinga ofmetin. Ekki sé tekið með inn í reikninginn hve dýrt er að eignast barn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×