Andri Snær og Björk: Umræða um sæstreng til Bretlands í anda sagna af álfum og tröllum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. nóvember 2015 12:30
Andri Snær Magnason og Björk Guðmundsdóttir segja löngu komin tíma til að fólk fái að vita sannleikann. Öll umræða um sæstreng frá Íslandi til Bretlands séu í anda sagna af álfum og tröllum.„Reyndar hefur amma mín séð álfkonu en ég get ekki flutt hana til Bretlands,“ sagði Andri Snær á blaðamannafundi þeirra Bjarkar í Gamla bíó í dag. Þangað voru erlendir blaðamenn boðaðir í þeim tilgangi að verða upplýstir um stöðu mála í íslensku samfélagi. Sýnt var beint frá fundinum á Vísi og má sjá upptökuna frá honum í spilaranum að ofan. Þau Andri og Björk hafa starfað sem sjálfboðaliðar undanfarin ár í baráttu sinni fyrir verndun hálendis Íslands og náttúru fyrir eilífum virkjunarframkvæmdum. Undanfarið ár hafa launaðir starfsmenn undir merkjum hópsins Gætum Garðsins unnið að því að kortleggja virkjunarverkefni, setja hlutina í samhengi, reikna dæmið til enda og hjálpa til við markmið hópsins.Kynningarmyndband hópsins um aðgerðir stjórnvalda má sjá hér að neðan.Klýfur hálendið í tvennt Ljóst sé að fyrirhugaðar framkvæmdir stjórnvalda verði ekki stöðvaðar með lögum heldur þurfi að höfða til samvisku stjórnmálamannanna. Á dagskránni séu malbikaðir vegir og nýjar háspennulínur sem muni skipta landinu í tvennt auk fjölda annarra umdeildra framkvæmda á hálendinu. Þar af fimmtán stíflur eða orkuver. Andri Snær nefndi sem dæmi eilífa umræðu um sæstreng frá Íslandi til Bretlandst til að sjá Bretum fyrir rafmagni og efla tekjur Íslendinga. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og David Cameron, kollegi hans í Bretlandi, ræddu þetta á fundi í síðustu viku og sagðist Cameron spenntur fyrir hugmyndinni. „Ef við myndum virkja hverja einustu á á Íslandi gætum við mögulega framleitt tíu prósent af því rafmagni sem Bretar nota,“ sagði Andri Snær og vísaði í tölur sem sérfræðingar Gætum garðsins hafa tekið saman.Að neðan má sjá kort yfir svæðið sem til umræðu er.Iceland is not an infinite source of energy; it's home to delicate nature that we want to preserve.This map provides...Posted by Gætum garðsins on Friday, November 6, 2015Ríkisstjórn virki þvert á skoðun almennings Andri Snær segir að umhverfisverndarsinnar séu í stöðugri baráttu við orkuhæp. Hvert einasta álver á Íslandi noti rafmagn sem myndi duga milljón Íslendingum. Björk bætti við að áttatíu prósent Íslendinga væru sammála um mikilvægi þess að vernda umhverfið. Það mætti síns hins vegar lítils gegn aðgerðum ríkjandi stjórnvalda. „Ísland er ennþá staður töfra. Hér er hins vegar lítill infrastrúktúr. Það þýðir að hlutum má koma í framkvæmd auðveldlega. Til dæmis að koma á fót tónlistarhátíð,“ sagði Björk. Hins vegar geti það virkað í báðar áttir. Það hafi sést í hruninu 2008. „Ríkisstjórnin sem hefur aðeins verið við völd í tvö ár hefur þegar planað að virkja áttatíu svæði á Íslandi. Talan er sem betur fer komin niður í 54 svæði nú,“ segir Björk. Hún hefur miklar áhyggjur af því að núverandi ríkisstjórn reyni, þvert á skoðanir almennings, að keyra orkuverkefni sín í gang á meðan hún sé við völd.Nokkur þeirra svæða sem eru í hættu vegna fyrirhugaðra framkvæmda.Places threatened by plans for development outlined in the government's Master Plan for conservation of nature and utilization of energyPosted by Gætum garðsins on Thursday, November 5, 2015Reisa álver eins og afleiðingarnar séu engar Andri og Björk segja rafmagnsframleiðslu á Íslandi nú þegar tíu sinnum meiri en þörf er á fyrir íbúa landsins. Þau velta upp þeirri spurningu hvaða álverum standi til að loka ef skoða eigi raunverulega þann möguleika að koma rafmagni til Bretlands með sæstreng. „Við búum á raunverulegum stað, með fallegum fossum og náttúru og trúum því sannarlega að það væri verðmætara fyrir okkur og heiminn að varðvæta hálendið og gefa fólki færi á að njóta þess og sækja innblástur,“ sagði Andri. Þau séu á útopnu nú með Facebook-síðuna Gætum garðsins auk þess sem undirskriftasöfnun standi yfir. Sumum svæðum eins og Langasjó hafi tekist að bjarga en aðrir hafa tapast. Þar megi nefna glæsilega fossa og vötn á Austurlandinu sem fóru undir virkjun við Kárahnjúka til að framleiða rafmagn fyrir Alcoa. Enn stjórnvöld tali enn fyrir því að reisa fleiri álver og selja rafmagn til Bretlands eins og afleiðingarnar af því séu engar.Skilaboð sem Björk birti á YouTube má sjá hér að neðan. Upptakan af fundinum er í spilaranum efst í fréttinni.
Björk Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira