Viðskipti erlent

Kínverskir skósalar kaupa Hamleys á 20 milljarða

ingvar haraldsson skrifar
Guðjón Reynisson, framkvæmdastjóri Hamleys, hefur stýrt félaginu í gegnum mikið vaxtaskeið.
Guðjón Reynisson, framkvæmdastjóri Hamleys, hefur stýrt félaginu í gegnum mikið vaxtaskeið. hamleys
Búið er að selja elstu leikfangaverslun heims Hamleys til kínverskru skósölukeðjunnar C.Banner International Holdings fyrir 100 milljónir punda, um 20 milljarða íslenskra króna. Bloomberg greinir frá.

Hamleys hefur verið í örum vexti síðustu ár undir stjórn framkvæmdastjórans Guðjóns Reynissonar en fyrirtækið hefur opnað yfir fimmtíu verslanir í þremur heimsálfum frá árinu 2008.



Seljandinn er franski leikfangaframleiðandinn Ludendo sem keypti Hamleys árið 2012, sem þá var í stærstum hluta í eigu slitabúa Kaupþings og Landsbankans. Kaupverðið voru 60 milljónir punda, um 12 milljarða íslenskra króna samkvæmt frétt The Guardian. Ludendo hefur því fengið góða ávöxtun á fjárfestingu sína á þeim þremur árum sem félagið átti Hamleys.



Hamleys, sem opnaði fyrstu verslunina árið 1760, var í eigu Baugs og Fons fram að hruni eða þar til félögin voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2009. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×