Viðskipti erlent

Snapchat segist ekki mega vista og nota allar myndir frá notendum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Snapchat er eitt vinsælasta smáforrit í heiminum í dag.
Snapchat er eitt vinsælasta smáforrit í heiminum í dag. Vísir/Snapchat
Snapchat segist ekki vista myndir og myndbönd sem notendur senda á milli sín og að umdeildir uppfærðir notendaskilmálar sem kynntir voru í síðustu viku feli ekki í sér miklar breytingar frá því sem áður hefur verið.

Í yfirlýsingu sem fyrirtækið birti á bloggsíðu sinni segir eftirfarandi: „Snöppin og skilaboðin sem send eru á milli notenda eru alveg jafn mikið einkamál notenda og þau voru áður en að við uppfærðum notendaskilmálana.“

Jafnframt segir að Snapchat hafi ekki og muni ekki safna saman snöppum eða skilaboðum sem send séu á milli notenda. Þeim sé raunar eytt um leið og skilaboðin sjáist og því geti fyrirtækið ekki safnað þeim saman eða deilt þeim með auglýsendum.

Snapchat má þó nota efni frá notendum í Live Stories

Fyrirtækið segir þó að vissulega segi notendaskilmálarnir að Snapchat megi nota myndbönd sem notendur búa til með hjá Snapchat og vísar fyrirtækið þar til hinna svokölluðu Live Stories þar sem notendur geta sent Snapchat myndskeið sem fyrirtækið safnar saman og birtir líkt og Íslendingar fengu að kynnast fyrir skömmu.

Snapchat bendir einnig á í yfirlýsingunni að notendur geti alltaf stillt hvaða skilaboð Snapchat megi nota á þennan hátt og því sé auðvelt fyrir notendur að tryggja að samskipti sín á milli séu þeirra eigið einkamál.

Nýjir notendaskilmálar sem Snapchat kynnti í síðustu viku ollu talsverðri reiði á meðal notenda smáforritsins enda mátti á þeim skilja að Snapchat myndi fá leyfi til að eiga myndirnar frá notendum og að einnig mætti nota þessar myndir hverskyns auglýsingaefni fyrir Snapchat. Sjá má hinu umdeildu skilmála í tístinu hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Kennarar tali við nemendur í gegnum Snapchat

Kennari og sérfræðingur í skólaþróun segir mikilvægt að íslenskir kennarar noti samfélagsmiðla á borð við twitter og snapchat í meira mæli til að ná til nemenda og brjóta upp námið. Nemendur eru misopnir fyrir því að nota samfélagsmiðla sem kennslutæki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×