Viðskipti erlent

Spá því að evran verði jöfn dollaranum árið 2016

Sæunn Gísladóttir skrifar
Gengi evru hefur veikst verulega undanfarna mánuði.
Gengi evru hefur veikst verulega undanfarna mánuði.
Sérfræðingar hjá Nomura spá því að um mitt ár 2016 verði gengi dollara hnífjafnt evrunni. Business Insider greinir frá þessu. 

Dollarinn hefur verið að styrkjast að undanförnu, samhliða því sem gengi evrunnar hefur orðið veikara. Sumir sérfræðingar telja jafnvel að dollarinn sé orðinn of sterkur og að það muni hafa neikvæð áhrif á bandarísk fyrirtæki í útflutningi.

Sjá einnig: Gengi bandaríkjadals er að nálgast gengi evrunnar

Spáð er því að seðlabanki Bandaríkjanna muni hækka stýrivexti í desember, sem er í fyrsta sinn sem það er gert síðan árið 2006. Evrópubankinn er hins vegar að huga meira að því að lækka vexti. Ef það gengur eftir mun evrann veikjast meira en dollarinn styrkjast. 

Goldman Sachs spáði því í mars að evran myndi verða jöfn dollaranum innan sex mánaða sem hefur ekki gengið eftir. Tíminn verður að leiða í ljós hvenær gengi gjaldmiðlanna verður hið sama.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×