Langtímaafleiðingar hryðjuverka fara eftir viðbrögðum Skjóðan skrifar 18. nóvember 2015 10:00
Vestrænir hlutabréfamarkaðir tóku hryðjuverkaárásunum í París af yfirvegun. Franska hlutabréfavísitalan, CAC40, lækkaði lítillega á mánudaginn en aðrar vestrænar hlutabréfavísitölur hækkuðu. Fjárfestar eru minnugir þess að bandaríski markaðurinn jafnaði sig fljótt eftir 11. september 2001 og sama gildir um breska markaðinn eftir að ráðist var á almenningssamgöngur í London í júlí 2005. Nú gáraðist varla markaðurinn þó að hlutabréf flugfélaga og ýmissa ferðaþjónustufyrirtækja lækkuðu nokkuð. Dæmin hafa sýnt okkur að hryðjuverk hafa lítil áhrif á verð hlutabréfa þegar frá líður. Strax í kjölfar ódæðisverka hryðjuverkamanna má merkja flótta fjárfesta í skjól öruggari fjárfestinga á borð við ríkisskuldabréf. Gull hækkar líka einatt í verði eftir slíkar árásir. Til lengri tíma virðast áhrifin hverfandi. Hér skiptir þó miklu hver eru viðbrögð stjórnvalda við hryðjuverkaárásum. Viðbrögð bandarískra stjórnvalda við árásunum 11. september 2001 voru yfirdrifin. Öryggisgæsla á bandarískum flugvöllum var margfölduð með tilheyrandi töfum og kostnaði fyrir flugfarþega og bandaríska skattgreiðendur. Bandaríkjamenn létu sér ekki nægja að grípa til viðamikilla öryggisráðstafana heima fyrir heldur gerðu þeir gríðarlegar kröfur um öryggisráðstafanir hjá erlendum flugfélögum sem fljúga til Bandaríkjanna. Þetta hefur torveldað viðskipti og aukið kostnað. Þá er ótalinn kostnaður af stríðsrekstri Bandaríkjanna og fleiri vestrænna ríkja í Afganistan og Mið-Austurlöndum, sem var bein viðbrögð við árásunum á Bandaríkin. Segja má að árásir Al-Qaeda á Bandaríkin hafi heppnast fullkomlega. Hryðjuverk eru fyrst og fremst framin í þeim tilgangi að skapa ótta meðal fólks og ráðast að hinni opnu vestrænu samfélagsgerð. Það heppnaðist 2001. Viðbrögðin voru verri en árásin. Nú standa vestrænir þjóðarleiðtogar frammi fyrir prófraun. Árásirnar í París voru fyrirlitlegar og árásarmennirnir gungur. París er mikil ferðamannaborg og takist að hræða ferðamenn frá ferðalögum þangað getur það haft alvarleg áhrif á efnahag borgarinnar og Frakklands. Ferðamannasvæði eru berskjölduð í þessum efnum. París mun hins vegar til lengdar alltaf draga til sín ferðamenn. Stærri hætta felst í því að stjórnvöld í Evrópu bregðist of hart við vánni. Uppi eru raddir um að leysa skuli upp Schengen-landamærasamstarfið og hvert ríki taki upp eigin landamæragæslu. Þá verður ekki lengur hægt að fara hindrunarlaust milli Frakklands og Þýskalands eða Hollands og Belgíu. Langar raðir myndast við landamærin með óheyrilegum töfum og kostnaði fyrir almenning og fyrirtæki. Það yrði dýrkeypt kaos fyrir Evrópu, sem þarf allt frekar en að auka viðskiptahindranir og draga úr hagvexti. Langsótt er að slík verði niðurstaða leiðtoga ESB þó að minni spámenn úr hópi stjórnmálamanna innan EES gamni sér við tilhugsunina. Fyrstu viðbrögð Frakklandsforseta virðast þó vera full yfirdrifin og valda áhyggjum.Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu. Hún er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
Skjóðan Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Kalla inn fæðubótarefni Neytendur Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira