Viðskipti erlent

Auglýsing Coca Cola tekin úr birtingu þar sem hún þótti rasísk

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Skjáskot úr hinni umdeildu auglýsingu.
Skjáskot úr hinni umdeildu auglýsingu.
Gosdrykkjaframleiðandinn Coca Cola hefur beðist afsökunar á afar umdeildri jólaauglýsingu sem fyrirtækið setti í loftið í Mexíkó nýlega. Þá var auglýsingin tekin úr birtingu en Coca Cola var harðlega gagnrýnt fyrir að ýta undir fordóma og staðalímyndir af indjánum sem eru frumbyggjar Mexíkó.

Í auglýsingunni sést hvar ungt og glæsilegt fólk, sem er ljóst á hörund, kemur í frumbyggjaþorp með gosdrykki og jólatré fyrir indjánana sem verða yfir sig hrifnir.

Að sögn Coca Cola voru skilaboð auglýsingarinnar gleði og samheldni en þeir sem gagnrýndu auglýsinguna töldu hana bera merki kynþáttafordóma þar sem indjánar væru sýndir sem skör lægra en hvítt fólk.

Fóru ýmsir aktívistar fram á að gosdrykkjaframleiðandinn yrði beittur sektum af hálfu ríkisstjórnarinnar fyrir að hvetja til mismununar. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fyrirtæki sæta harðri gagnrýni í Mexíkó vegna auglýsinga sem taldar eru litaðar af kynþáttafordómum. Meirihluti Mexíkóa er dökkur á hörund en dökkir eru engu að síður í minnihluta þegar kemur að jákvæðum hlutverkum í sjónvarpi í landinu.

Auglýsingu Coca Cola má sjá hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×