Stigahæsti leikmaður Dominos-deildar kvenna ekki meira með á árinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2015 10:15 Chelsie Schweers. Vísir/Vilhelm
Chelsie Schweers, bandaríski bakvörðurinn hjá nýliðum Stjörnunnar í Dominos-deild kvenna, mun missa af næstu leikjum Garðabæjarliðsins. Stjarnan segir frá því á fésbókarsíðu sinni að Chelsie Schweers verði allavega frá keppni út árið. Chelsie Schweers er handarbrotin en það kom ekki í ljós fyrr en hún var búin að spila þrjá leiki handarbrotin. Chelsie meiddist í leik á móti Val en hafði síðan skorað 41 stig á móti Hamar, 34 stig á móti Haukum og 31 stig á móti Snæfelli. Ekki slæmt hjá leikmanni sem var að spila handarbrotin. Chelsie Schweers hefur skorað 33,3 stig, tekið 8,0 fráköst og gefið 5,4 stoðsendingar að meðaltali í átta leikjum sínum í Domino´s deild kvenna í vetur. Chelsie er mikil þriggja stiga skytta en auk þess að vera stigahæsti leikmaður Domino´s-deildarinnar þá hefur heldur enginn leikmaður skorað fleiri þriggja stiga körfur. Chelsie hefur skorað 31 þrist í 8 leikjum eða 3,9 að meðaltali í leik. Stjarnan lék í fyrsta sinn án Chelsie Schweers í Keflavík á sunnudagkvöldið og tapaði þá með 23 stiga mun, 75-52. Chelsie Schweers er ekki sú eina sem er frá keppni í Stjörnuliðinu. Hafrún Hálfdánardóttir er einnig meidd og þá hefur Bára Fanney Hálfdanardóttir einnig verið frá æfingum og keppni. Stjörnuliðið er sem stendur í 6. sæti deildarinnar en einu sigrar liðsins hafa komið á móti Keflavík og botnliði Hamars.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira