Í upphlutsbol við stutt pils 5. mars 2015 14:30 Svava Kristín Grétarsdóttir heldur mikið upp á upphlut langömmu sinnar sem hún notar við hátíðleg tækifæri. Mynd/Vilhelm
Langamma mín átti þennan upphlut sem er nú orðinn 95 ára gamall,“ segir Svava Kristín Grétarsdóttir förðunarfræðingur sem notar bol og belti af þjóðbúningi langömmu sinnar við ýmis hátíðleg tækifæri. Svava er nafna langömmu sinnar og á sama afmælisdag og hún. „Ég mátaði þjóðbúninginn fyrst fjórtán ára þegar langamma vildi fá mynd af mér í honum. Ég sá þá eftir því að hafa ekki prófað hann fyrr því ég hefði gjarnan viljað fermast í honum.“ Svava Kristín klæddist þjóðbúningnum ekki aftur fyrr en hún var sautján ára gömul. „Þá var haldið þorrablót sem öll fjölskyldan var á leið á. Flestir klæddu sig í þjóðleg föt og mig langaði að vera með. Hins vegar vildi ég ekki vera alveg hefðbundin. Þá ákvað ég að fara bara í bolinn af upphlutnum ásamt stokkabeltinu og það kom rosalega vel út,“ segir Svava Kristín. Hún hefur síðan þá klæðst upphlutsbolnum við ýmis hátíðleg tækifæri. „Ég hef verið í bolnum yfir kjól eða verið í honum einum við pils eða víðar samkvæmisbuxur og þetta kemur alltaf vel út.“Jákvæð viðbrögð Hún segist iðulega fá mjög góð viðbrögð frá fólki. „Margir spyrja mig út í hvort bolurinn sé ekta og ég fæ mikið hrós fyrir. Ég hef ekki fengið neikvæð viðbrögð þótt ég sé vitanlega að breyta búningnum með því að klæðast honum svona,“ segir hún. Fjölskylda hennar er einnig mjög jákvæð. „Þeim þykir vænt um að ég noti búninginn en auðvitað má ekki misnota hann og vera í þessu alla daga. Ég vel sérstök tilefni til þess og þá er þetta bara skemmtilegt.“ Mikil verðmæti liggja í beltinu og millum og víravirki á bolnum. Er óhætt að fara út á galeiðuna með slíka dýrgripi? „Ég passa þetta vel. Svo hringir mamma alltaf í mig daginn eftir til að athuga hvort allt hafi skilað sér heilt heim,“ svarar Svava og hlær.Gaman að gömlum fötum Svava segist pæla talsvert í tísku. „Mér finnst oft gaman að vera pínulítið öðruvísi og breyti oft gömlum hlutum og geri þá að mínum. Þannig er fataskápurinn hennar ömmu eiginlega allur kominn í bæinn til mín,“ segir hún glettin. „En inn á milli fylgir maður bara tískunni,“ segir hún en uppáhaldsbúðir hennar hér á landi eru Spútnik og Zara. Eyðir þú miklu í föt? „Já, ég verð að viðurkenna það, ég er dálítið dýr í rekstri,“ svarar hún kímin. En hvað með helstu veikleikana þegar kemur að tísku og útliti? „Ætli það sé ekki fullkomnunaráráttan. Ég er mjög lengi að hafa mig til og vinir mínir geta orðið ansi þreyttir á að bíða eftir mér meðan ég næ öllu alveg fullkomnu. Það þarf allt að passa, frá skóm og fötum til förðunar. Reyndar lít ég ekki á þetta sem veikleika af því ég hef bara svo rosalega gaman af því að hafa mig til.“
Mest lesið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Ástin blómstraði á sýningu Tolla Menning Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Fleiri fréttir Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira