Úrval mynda sem ekki er í bókinni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. mars 2015 13:30 Hjónin Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Valberg. Vísir/GVA
Reykjavík sem alls ekki varð er efni HönnunarMars-sýningar Crymogeu á Barónsstíg 27 sem er í höndum Önnu Drafnar Ágústsdóttur sagnfræðings og Guðna Valberg. „Þetta er bókin sem ekki varð. Úrval mynda sem ekki fengu að vera með í bókinni Reykjavík sem ekki varð en fá nú sitt tækifæri á HönnunarMars,“ útskýrir Anna Dröfn þegar forvitnast er um sýninguna í Crymogeu sem opnuð er í dag. Hún tekur fram að Guðni Valberg, eiginmaður hennar, sé arkitekt að sýningunni en þau hafi skrifað bókina saman. Þriðja prentun af bókinni var að koma út en hún seldist upp fyrir jól. Anna Dröfn er ánægð með viðtökurnar. „Okkur finnst þetta afar skemmtilegt efni og höfum ekki náð að slíta okkur frá því ennþá.“Ein af nokkrum skissum Guðjóns Samúelssonar arkitekts að Hallgrímskirkju, á sýningunni í Crymogeu.Þeir sem halda að byggingar fæðist fullskapaðar í höfði arkitekta komast að öðru á sýningunni. Meðal mynda þar eru skissur af Hallgrímskirkju og þar sést hugsanaferlið sem Guðjón Samúelsson, arkitekt hennar, fór í gegnum. Svo eru þar líka myndir af borginni eins og hún er, sem módelin hafa verið sett inn í. Þá getur fólk séð muninn á því hvernig borgin hefði mögulega getað orðið og því hvernig útkoman varð. Eða eins og Anna Dröfn segir: „Við setjum skissurnar í samhengi við borgina eins og við þekkjum hana.“Kvöldfréttir Stöðvar 2 sýndu beint frá opnun sýningarinnar í húsnæði Crymogeu við Barónstíg. Hægt er að sjá innslagið í spilaranum hér fyrir neðan.
HönnunarMars Menning Tengdar fréttir Hugmyndir fortíðar sem veruleiki nútímans Rykinu er dustað af gömlum byggingar- og skipulagshugmyndum og þær settar í samhengi við ljósmyndir af Reykjavík í bókinni Reykjavík sem ekki varð. 9. nóvember 2014 13:31 Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira
Hugmyndir fortíðar sem veruleiki nútímans Rykinu er dustað af gömlum byggingar- og skipulagshugmyndum og þær settar í samhengi við ljósmyndir af Reykjavík í bókinni Reykjavík sem ekki varð. 9. nóvember 2014 13:31