Rómantísk fjarbúð hentar einfaranum vel sigga dögg skrifar 8. maí 2015 10:15 vísir
Ragga nagli er skelegg kona sem kallar ekki allt ömmu sína og hún ætlar sér að breyta hugsunum okkar um mat og okkur sjálf þegar við borðum. „Við verðum að vera aðeins góð við okkur, matur er ekki svona svarthvítur, vont/slæmt, heldur er hellingur af gráu. Það má taka smá úr svarta „vonda“ kassanum og blanda við það „góða“ úr hvíta kassanum.“ Þannig segir Ragga að það megi alveg gera skorpu utan um kjúkling (matvara úr hvíta kassanum) með Doritos-snakki (matur úr svarta kassanum) en hlutfall matar úr hvíta kassanum þarf að vera hærra en það úr svarta kassanum. „Ég þekki svarthvíta nálgun af eigin raun. Þegar ég byrjaði á braut heilsunnar lenti ég á þjálfara sem leyfði mér bara að borða túnfisk, eggjahvítu og kjúkling og ég hlýddi því en átti þarna tímabil af epískum átköstum því mataræðið var svo einhæft og leiðinlegt og reglurnar svo stífar. Þess vegna gengur mér vel að vinna með þetta málefni og hjálpa fólki því ég þekki þessar hugsanir sem hrærast um í kollinum mjög vel.“ Ragga er menntaður klínískur heilsusálfræðingur og vinnur mikið með vandamál sem tengjast ofáti og yfirþyngd, eins og ofátsröskun, lotuofát, tilfinningaát, laumuát. „Við erum búin að gera mat svo flókinn með öllum skilaboðunum og tískusveiflunum um hvað „má“ og „má ekki“ borða að margir eru orðnir hjálparlausir og ráðþrota og stöðugt fullir af samviskubiti gagnvart mat,“ segir Ragga sem þekkir þetta af eigin raun.Minn staður, minn tími, segir Ragga um ræktinaVísir/EinkasafnEkki vera fyrir, feita stelpa Ragga fékk oft athugasemdir um vaxtarlag sitt þegar hún var ung kona og segir karlmenn hafa verið óhrædda við að láta vanþóknun sína í ljós. „Viltu ekki slaka á í kexinu, vinan, sögðu þeir nokkrir eða þá góluðu yfir hópinn að nú skyldu allir færa sig því ég tæki allt plássið á gangstéttinni,“ rifjar Ragga upp. Það voru þó ekki þessi viðbrögð sem fengu Röggu til að huga að mataræðinu heldur voru það jólabuxurnar sem hún komst ekki lengur í með hækkandi sól. „Ég er öfgakona í mér, ég tek hlutina alla leið. Ég elskaði að borða sem barn og gat verið botnlaus en þegar ég ákvað að snúa við blaðinu þá tók ég það líka alla leið. Það er oft þannig að þeir sem glíma við fíkn á annað borð eru veikari fyrir öfgum.“ Ragga segir svo vera í sínu tilfelli. „Þegar ég var unglingur gat ég drukkið hvern sem er undir borðið en í dag drekk ég ekki áfengi því ég finn að ég þarf það ekki til að skemmta mér og mig langar heldur ekki til þess. Það einfaldlega hentar ekki mínum lífsstíl,“ segir Ragga sem saknar ekki Bakkusar og segist engri gleði hafa tapað við það að vera edrú í partíum. Ragga segist vera á tánum með sjálfa sig og eigin hugsanir og er fljót að greina gagnrýnina þegar neikvæðar hugsanir fara að hringsóla eins og hrægammar. „Ég nota mitt eigið meðferðarform, staldra við og greini í hvaða aðstæðum þessar neikvæðu hugsanir komu fram og hvaða áhrif þær höfðu á hegðun mína. Þannig get ég betur unnið með þær,“ segir Ragga, sem segir þetta ferli vera uppistöðuna í hugrænu atferlismeðferðinni sem hún beitir með sínum skjólstæðingum.Hjónin, Snorri og RaggaVísir/EinkasafnÁstin í fjarbúð Ragga kynntist Snorra sínum í fríi með vinkonu sinni á Kúbu. Hann var 23 ára og hún 19 ára og eftir eitt blikk var ástarsagan þeirra skrifuð og hafa þau verið saman allar götur síðan. Ragga segir þau vera gott par og skilja þörf hvort annars fyrir fjarlægð. „Ég er í raun mikill einfari í mér og mér finnst mjög gott að vera ein og það hentar okkur mjög vel sem pari. Ég upplifi mig oft sem sjómannskonu. Þegar við höfum verið of lengi saman þá fer að gæta smá titrings og hlutir eins og hvernig hann tyggur matinn fara að pirra mig,“ segir Ragga og skellihlær. Ragga og Snorri búa í Kaupmannahöfn en Snorri, sem er arkitekt, vinnur í Ósló. „Það er voða mikil rómantík hjá okkur því við erum svo dugleg að ferðast og fara út að borða og eiga gæðastundir saman enda erum við barnlaus og höfum bara hvort annað.“ Innt eftir því hvort það sé meðvituð afstaða gegn barneignum segir Ragga svo ekki vera. „Ætli það megi ekki segja að ég hafi bara ekki fundið þessa löngun í börn, ég sæki ekkert sérstaklega í þau og ég er bara voða róleg enda alltaf 26 ára í hjartanu,“ segir Ragga, sem bætir því þó við að framtíðin sé óskrifað blað. „Ég myndi ekki vilja koma með börn í fjarbúð svo ef, eða kannski þegar, við förum að bæta við fjölskylduna okkar þá myndi ég vilja að við værum á sama staðnum,“ segir Ragga sem leggur ríka áherslu á hversu barnvænt og gott velferðarsamfélagið í Danmörku sé.Ragga er reglulega með matreiðslunámskeið og næsta verður haldið 11.maíVísir/EinkasafnDanir geta verið óþolandi Fyrir sex árum hefði Ragga ekki geta ímyndað sé að hún myndi enda ástfangin á hjóli á götum Kaupmannahafnar því í raun fannst henni borgin frekar hallærisleg eða „æ svo týpískt eitthvað sem allir Íslendingar gera, flytja bara til Köben, sko í alvörunni, en óspennandi,“ segir Ragga og ranghvolfir augunum. Það var í kjölfar hrunsins sem Ragga og Snorri tóku þá ákvörðun að flytja til Danmerkur. „Ég var nýbúin að missa vinnuna og það lá í augum uppi að Snorri væri líka að fara að missa vinnuna og svo fundum við okkur ekki í þessari stemmingu hérna, ég meina mig langar ekkert í einhvern röndóttan vasa eða rándýran sófa,“ segir Ragga, sem leggur mikla áherslu á að leggja litla áherslu á veraldleg gæði. „Við hjónin ferðumst ótrúlega mikið og hreinlega elskum það, við erum alltaf á ferðinni enda bæði ótrúlega rótlaus svo okkar peningar fara í það,“ segir Ragga sem bætir við að hún þoli ekki bíla og elski að geta notað eigin orku til að komast á milli staða. Því henti Kaupmannahöfn henni mjög vel sem og reglufesta Dana þótt vissulega geti hún einnig gert þá óþolandi. „Þú reddar engu í Danmörku, það er bara ekki til og svo eru þeir reglugerðasjúkir, en ef maður bara veit það þá verður þetta allt í lagi,“ segir Ragga, sem sér ekki fyrir sér að flytja aftur heim á næstu árum. „Hugsunarhátturinn hér varðandi mat er líka svo góður. Danir eru alltaf að „hygge sig“ og fá sér smörrebröð, öl og majones en eru samt í frábæru formi því þeir hjóla út um allt og neyta í hófi,“ segir Ragga, sem bætir við að Íslendingar geti lært ansi margt af frændum okkar Dönum hvað matarvenjur og umhverfisvernd varðar.Ragga nagliVísir/StefánRagga er nagli Ragga nagli er orðið þekkt vörumerki og þótt hún tali um sig í þriðju persónu og sleppi flestum persónulegum frásögnum á blogginu sínu þá eru hún og Ragga nagli ein og sama manneskjan. „Þetta er ekki karakter eins og Sylvía Nótt, ég segi ekki eitt og Ragga nagli annað. Ég er Ragga nagli og það sem ég skrifa um er oft mín eigin saga þótt hún sé ekki skrifuð í fyrstu persónu,“ segir Ragga, sem segir málfræðina sem fylgir karlkyni naglans stundum valda sér hausverk enda með blæti fyrir málfræði. „Ég hef alveg pælt í þessu en svo er þetta bara orðið svo stór hluti af mér og því sem ég geri og vinn með að ég ætla að halda þessum nagla fyrir aftan nafnið mitt,“ bætir Ragga án þess þó að útiloka að framtíðin beri eitthvað annað í skauti sér. „Ég lifi mikið í núinu, fortíðin er búin og framtíðin óskrifað blað sem gæti breyst fyrirvaralaust. Ef þú hefðir sagt mér fyrir sjö árum að ég myndi búa í Kaupmannahöfn þá hefði ég sagt „glætan“ og ef þú hefðir svo sagt mér að ég yrði klínískur sálfræðingur á eigin stofu þá „ekki sjéns“ og hvað þá að gefa út bók, en svona er bara lífið og maður þarf að geta spilað með,“ segir Ragga með smitandi kátínu. Blaðamaður er ekki frá því að hún gangi nú léttari í spori eftir að hafa hlaðið batteríin út frá ljómandi orkuboltanum sem hún Ragga okkar nagli er.Nánari upplýsingar um sálfræðifjarmeðferð Röggu og matreiðslunámskeiðin hennar má nálgast á vefsíðunni hennar.
Lífið Mest lesið Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Lífið Talsmaður Hvíta hússins segir að Carpenter hljóti að vera heimsk Lífið Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Tónlist „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ Lífið Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Lífið Gummi skíthræddur við Sigurjón Kjartans Lífið Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Lífið Fleiri fréttir Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði „Mamma, ég gat þetta“ Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Gummi skíthræddur við Sigurjón Kjartans Þessi stóðu upp úr hjá Spotify í ár „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ „Lendir auðvitað í því að vera alltaf málaður upp sem voðalega vondur“ Siggi Ingvars og Alma Finnboga fjölga sér Talsmaður Hvíta hússins segir að Carpenter hljóti að vera heimsk Hræðilegra að syngja með Bítinu en að fara í fallhlífastökk Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Selfyssingar unnu Skjálftann með verki um hinsegin bakslag Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu A-teens og tveir fyrrverandi sigurvegarar taka þátt í Melodifestivalen Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Bílakarókí með Bítinu: „Rændirðu henni?“ „Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Kim mældist með „litla heilavirkni“ Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Er hægt að njóta kynlífs þrátt fyrir mikla áfallasögu? Fela einhverfu til að passa inn MTV hættir að sýna tónlistarmyndbönd allan sólarhringinn Sjá meira
Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið
Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið