Viðskipti erlent

Flugfélögin krefjast skattalækkana

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Michael O'Leary segir nauðsynlegt að flugfélögin láti í sér heyra. Þau hafi ekki talað einum rómi.
Michael O'Leary segir nauðsynlegt að flugfélögin láti í sér heyra. Þau hafi ekki talað einum rómi. Nordicphotos/afp
Æðstu yfirmenn fimm stærstu flugfélaga í Evrópu hafa snúið bökum saman. Þeir hvetja framkvæmdastjórn Evrópusambandsins til að styðja við bakið á flugfélögum með því að lækka skatta og minnka kostnað þeirra.

Yfirmenn IAG, easyJet, Ryanair, Air France-KLM og Lufthansa hittust í Brussel í gær. Á fundi sínum skoruðu þau á Violetu Bulc, yfirmann samgöngumála hjá Evrópusambandinu, að beita sér fyrir þessu. Telegraph segir að yfirmenn þessara fimm félaga séu vanari því að deila innbyrðis um markaðinn.

Auk þess sem þeir vilja lækka skatta vilja þeir að Evrópusambandið beiti sér fyrir því að dregið verði úr þeim skaða sem verkfall flugumferðarstjóra hefur valdið og skera niður gjöld sem flugvellir taka af flugfélögunum.

Bulc tók við hlutverki yfirmanns flugmála í nóvember. Búist er við að hún muni kynna stefnumótun í flugmálum síðar á þessu ári. Michael O'Leary, forstjóri Ryanair, segir að nauðsynlegt sé að flugvélögin láti í sér heyra í aðdragandanum að því. „Við þurfum að láta í okkur heyra vegna þess að við höfum talað ólíkum röddum á liðnum árum,“ sagði hann. O'Leary tók þó fram að flugfélögin væru ekki sammála í einu og öllu.

Flugfélögin ætla að stofna ný hagsmunasamtök sem hafi tekið til starfa í október og muni eiga samskipti við Evrópusambandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×