Hið upphafna Ísland tónað niður Magnús Guðmundsson skrifar 26. júní 2015 13:15 Þær Áslaug Íris Friðjónsdóttir og Unnur Mjöll Leifsdóttir fyrir framan verkið Prelude nr. 1, 2014-2015 eftir Pétur Thomsen. Visir/Valli
Sýningarstjórar á Enginn staður eru þær Áslaug Íris Friðjónsdóttir og Unnur Mjöll S. Stefánsdóttir og þær segja að hugmyndin að sýningunni komi í raun út frá anti-grand hugsun sem gætir nú víða í myndlistinni. „Okkur langaði til þess að sýningin gæfi okkur kost á því að líta okkur nær í íslensku landslagi, andstætt þeirri almennu upphafningu sem gætir svo víða í dag. Það er mikil áhersla á að upphefja íslenskt landslag í markaðssetningu samfélagsins og við vildum tóna þessa upphafningu niður.“ Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru þau Björn Árnason, Claudia Hausfeld, Daniel Reuter, Edda Fransiska Kjarval, Ingvar Högni Ragnarsson, Katrín Elvarsdóttir, Pétur Thomsen og Stuart Richardson.Óvenjuleg sýn Kaflaskipt landslag nr. 9 / Segmented Landscape no. 9, 2013 eftir Stuart Richardson.Þær Áslaug Íris og Unnur Mjöll lögðu mikla vinnu í undirbúning sýningarinnar, heimsóttu vinnustofur fjölda listamanna og völdu svo saman verk sem tónuðu saman með einum eða öðrum hætti. Unnur Mjöll segir að það sé tvímælalaust skýrt heildaryfirbragð á sýningunni þó svo þarna séu ólíkir listamenn á ferð. „Verkin eiga það öll sameiginlegt að hið upphafna Ísland er tónað niður. Gestum er gefinn kostur á að dvelja fremur í augnablikum sem við könnumst flest við með einum eða öðrum hætti – eitthvað eins og að vera einfaldlega með nefið í grasinu eða í þykkri þoku á miðri heiði. Við þekkjum þessi augnablik og það er fegurð í þeim sem er gaman að skoða.“ Áslaug Íris bendir á að svo gefi það líka sýningunni ákveðna vídd að listamennirnir eru ekki allir uppaldir á Íslandi. „Það breytir heilmiklu og gefur nýja sýn að alast ekki upp við íslenskt landslag. Við sem erum alin upp við að bruna fram hjá náttúrunni og stoppa helst aðeins á þessum helstu og þekktustu útsýnisstöðum gleymum stundum að gefa okkur tíma og skoða fegurðina í hinu almenna og smáa. Án titlis úr myndaröðinni Saga heimsóknarinnar, 2013 eftir Daniel Reuter.Þær Unnur Mjöll og Áslaug Íris benda á að það að taka ljósmynd felur í sér ákvörðun. Ákveðið val fer fram í huga listamannsins. Enginn staður hlýtur þar af leiðandi alltaf að vera nákvæmlega þessi staður. Þó það sé kannski einmitt vegna þess að hann gæti verið Enginn staður – eins og titill sýningarinnar vísar til. Á sýningunni gefst fólki kostur á að skoða skemmtilega blöndu þekktari og nýrra listamanna og það er gaman að tefla saman listamönnum úr ólíkum áttum. “ Unnur Mjöll bendir á að sýningin sé einnig tilvalin fyrir útlendinga og að Hafnarborg muni bjóða upp á leiðsögn á ensku í sumar. „Ljósmyndin er svo aðgengilegur miðill og því er tilvalið að gefa útlendingum líka kost á því að horfa út fyrir þessi hefðbundnu stopp. Sjá fegurðina í því sem er hversdagslegt og sjálfsagt í okkar augum.
Menning Mest lesið Ólöf mætti með Magnús upp á arminn Lífið Hætt að nota föt til að fela sig Tíska og hönnun Hitinn náði nýjum hæðum á klúbbnum Lífið Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Lífið Leikkonan Diane Ladd er látin Lífið Stjörnupar og hafnfirsk systkini sáu stærsta harmleik sögunnar Lífið Krýndur „kynþokkafyllsti maður ársins“ Lífið Aniston hefur fundið ástina á ný Lífið Með heimsfræg verk sín í sumarbústað sem gerður er úr tveimur eldri húsum Lífið „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Lífið Fleiri fréttir Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Magnús Karel og Inga Lára hlutu menningarviðurkenningu Árborgar Cecilie tekur við af Auði Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Katrín og Ragnar snúa aftur með nýja bók Fullkominn vettvangur til að verja vetrarfríinu Hver er uppáhaldsbókin þín eftir Halldór Laxness? Ný gjaldfrjáls íslensk-ensk veforðabók opnuð Ryan Eyford handhafi Vigdísarverðlaunanna 2025 Víkingur Heiðar hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs Lína orðin að „peningasjúkum TikTok-trúði“ eða sjálfsögð markaðssetning? Páll Baldvin fer fram gegn tillögu kjörnefndar Menningarvaktin: Ráðning óperustjóra jafn spennandi og þjálfara KR Trylltust við taktinn í barokkbúningum László Krasznahorkai hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Léleg“ hönnun gervigreindar reyndist mannanna verk Áhersla á hæglæti á Sequences Fögnuðu Heimsins besta degi í helvíti Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Heiður að fá að segja sögu kvennanna sem ruddu brautina „Kunna ekki að reikna, kunna svo ekki að skammast sín“ „Stefán er að hengja bakara fyrir að vera ekki smiður“ Sjá meira