Fræðst og sungið um rómantíkina Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. júlí 2015 13:30 Sveinn Enok ætlar meðal annars inn í Fríkirkjuna og syngja þar Tvær stjörnur eftir Megas. Vísir/Andri Marinó „
Ég ætla að taka lagið á vel völdum stöðum og fá fólk til að taka undir, ásamt Gunnari Ó. Kvaran harmóníkuleikara,“ segir söngvarinn Sveinn Enok Jóhannsson sem ætlar að syngja dægurlög tengd húsum sem skoðuð verða í kvöldgöngu um miðborgina annað kvöld. Gönguna leiðir Helga Maureen Gylfadóttir sagnfræðingur og hún kryddar gönguna með sögulegum fróðleik um revíur og rómantík. Sveinn er klassískur söngvari en nú verður hann á léttum nótum og kveðst verða með einhver textablöð til að dreifa meðal þátttakenda í göngunni. Hann nefnir lög eins og Vorkvöld í Reykjavík, Blátt lítið blóm eitt er, Ó borg mín borg, Ennþá brennur mér í muna og Það er draumur að vera með dáta. Gangan er hluti af kvöldgöngum menningarstofnana Reykjavíkurborgar og er lagt upp í hana frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 klukkan 20. Gert er ráð fyrir að gangan taki um 90 mínútur. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.-
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira