Helena með þrennu að meðaltali á móti Keflavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2016 15:30 Helena Sverrisdóttir í leik á móti Keflavík í vetur. Vísir/Stefán
Haukar og Keflavík mætast í kvöld í Domino´s deild kvenna í körfubolta og verður leikur liðanna í beinni á Stöð 2 Sport 3. Bæði lið hafa gengið í gegnum breytingar í fyrsta mánuði ársins en Haukar tóku inn bandarískan leikmann en Keflavík skipti um þjálfara. Þetta verður fyrsti leikur liðanna eftir þessar róttæku breytingar en Sverrir Þór Sverrisson tók við liði Keflavíkur af Margréti Sturlaugsdóttur og hin bandaríska Chelsie Alexa Schweers samdi við Haukaliðið. Helena Sverrisdóttir, spilandi þjálfari Haukaliðsins, hefur verið Keflvíkingum erfið það sem af er tímabilinu. Haukar hafa unnið báða leikina og Helena er með þrennu að meðaltali eða 20,0 stig, 16,5 fráköst og 11,0 stoðsendingar að meðaltali. Þetta er eina liðið í deildinni sem Helena hefur náð að vera með þrennu að meðaltali á móti. Helena var með þrennu í fyrri leiknum sem Haukar unnu 88-74 í Keflavík (17 stig, 17 fráköst, 13 stoðsendingar) en vantaði aðeins eina stoðsendingu í þrennuna í seinni leiknum á Ásvöllum sem Haukaliðið vann 69-61 (23 stig, 16 fráköst, 9 stoðsendingar). Hún náði 40 í framlag í báðum leikjum. Síðast þegar Sverrir Þór Sverrisson stýrði Keflavíkurliði á móti Helenu Sverrisdóttur þá tryggðu Haukakonur sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil en það var 7. apríl 2006. Helena var þá einnig með þrennu , skoraði 13 stig, tók 16 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Pálína Gunnlaugsdóttir er eini annar leikmaður Hauka sem tók þátt í þessum leik fyrir tæpu tíu árum og engin leikmaður Keflavíkurliðsins þá er enn að spila með liðinu. Leikur Hauka og Keflavíkur hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira