Viðskipti erlent

4chan stofnandi ráðinn til Google

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Chris Poole, stofnandi hinnar umdeildu vefsíðu 4chan, var á dögunum ráðinn til Google.
Chris Poole, stofnandi hinnar umdeildu vefsíðu 4chan, var á dögunum ráðinn til Google. Mynd/Getty
Fyrirtækið Google réði á dögunum stofnanda hinnar umdeildu vefsíðu 4chan, Chris Poole. Frá þessu greindi Poole sjálfur á Tumblr bloggsíðu sinni fyrir skömmu.

Segist hann vera mjög spenntur fyrir þessu nýja starfi, en hlutverk hans innan fyrirtækisins verður að bæta þá samfélagsmiðla sem Google á, einkum Google+, sem á sínum tíma átti að vera svar fyrirtækisins við Facebook.

Poole segist hafa orðið var við það að þeir starfsmenn Google sem hann hefur hitt eigi það sameiginlegt að búa yfir gáfum, ástríðu og eldmóði. Auk þess dáist hann að þeim vilja sem fyrirtækið býr yfir þegar kemur að því að reyna að leysa þau stóru mál sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir.

Deilur um ágæti 4chan

4chan, síðan sem Poole stofnaði árið 2003, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir ýmis mál. Það stærsta hefur vafalaust verið árið 2014 þegar notendur síðunnar birtu fyrstir allra nektarmyndir af frægu fólki, meðal annars af leikkonunni Jennifer Lawrence. Síðan var harðlega gagnrýnd í kjölfar þessa, og leiddi þetta af sér stefnubreytingu á síðunni.

Þrátt fyrir bakgrunn Poole telja margir að færni hans og reynsla í kringum samskiptamiðla gæti reynst Google drjúg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×