Viðskipti erlent

Slappt ástand vega gerir verkfræðinga gráhærða

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/EPA
Slæmt ástand vega í Bandaríkjunum hefur reynst sjálfkeyrandi bílum erfitt. Ástandið hefur leitt til aukins kostnaðar fyrirtækja eins og Tesla og Volvo og gert verkfræðingum erfitt fyrir. Bílarnir eiga meðal annars erfitt með að átta sig á staðsetningu sinni á vegum vegna lélegra merkinga.

Elon Musk, eigandi Tesla, hefur nýlega lýst málinu sem „klikkuðu“ og kvartaði hann yfir slæmum merkingum. Þá sýndi Volvo sjálfkeyrandi bíl á bílasýningu í Los Angeles á dögunum. Bíll Volvo stoppaði ítrekað og skammaði yfirmaður Volvo í Bandaríkjunum borgarstjóra Los Angeles fyrir það að bílinn greindi ekki merkingar á milli akreina.

Reuters fréttaveitan bendir á að um 65 prósent vega í Bandaríkjunum eru taldir vera í slæmu ásigkomulagi. Þá geti verið mikill munur á skiltum og ástandi vega eftir fylkjum og ríkjum.

Því hafa framleiðendur neyðst til þess að koma fyrir fleiri og betri skynjurum á bílnum. Það leiðir til hærri kostnaðar.

Í dagsljósi eru myndavélar notaðar til að greina línur á vegum, umferðarljós og umferðarskilti. Á nóttinni er hins vegar notast við radar- og ljósbylgjur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×