Fremstu listamenn heims sýna á Djúpavogi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 30. júní 2016 09:30 Þau Sigurður og Ineke Guðmundsson kunna vel við sig á Djúpavogi og láta heimamenn og gesti njóta þess. Mynd/Erla Dóra Vogler
Það er aðeins súld en mjög fínt veður,“ segir Sigurður Guðmundsson listamaður, staddur á Djúpavogi. „Það er alltaf gott veður hér á Íslandi. Ég bý í svo miklu hitabelti, í Xiamen á suðausturströnd Kína, á milli Sjanghaí og Hong Kong og mér finnst gott að koma í svalann hér.“ Sigurður og Ineke kona hans eru að drífa upp metnaðarfulla myndlistarsýningu í Bræðslunni á Djúpavogi á vegum fyrirtækisins Chines European Art Center sem Ineke á og stjórnar. Sýningin nefnist Rúllandi snjóbolti/7 og Katrín Jakobsdóttir mun opna hana klukkan þrjú á laugardaginn.Gerðist gegnum augum Þau Sigurður og Ineke hafa laðað marga af þekktustu listamönnum þjóðarinnar til sín og líka rjóma erlendra samtímalistamanna, þar sem ríkisakademían í Amsterdam er gengin til liðs við þau. En hvað kom til að þau tóku ástfóstri við Djúpavog? „Það var nú engin söguleg tenging. Það gerðist bara gegnum augun. Ég hef ekki búið á Íslandi í 50 ár en við hjónin eigum börn og barnabörn og langar að tengja þau landinu. Því vildum við kaupa okkur býli eða hús einhvers staðar og vorum búin að leita á öllum útkjálkum landsins en fundum ekkert sem hentaði. Einu sinni vorum við að koma á húsbíl frá Evrópu með Norrænu og halda í enn eina ferðina kringum landið. Lögðum bílnum hér í bænum og sváfum yfir nótt skammt frá Hammersminni, þegar við vöknuðum um morguninn var staðurinn baðaður sól og skammt frá stóð autt hús sem var til sölu. Við öfluðum upplýsinga hjá nágrönnum og úr varð að við keyptum húsið. Síðar byggðum við nýtt hús inni í því gamla. Það sést ekki og þetta er okkar sveitastaður síðan.“ Sigurður lýkur lofsorði á Djúpavog. „Hér er fallegt og hér býr svo flott fólk sem er búið að vera í öllum heiminum, vel upplýst lið. Þessu sýningarstandi okkar hefur verið tekið opnum örmum af öllum,“ segir hann og bætir við að þetta sé þriðja sumarið í röð sem þau sýni samtímalist helstu listamanna heimsins í Bræðslunni.Eins og New York París eða Róm „Allir þekktustu listamenn Íslendinga eru búnir að sýna hér ásamt þeim sem verða hér núna. Við ákváðum að hafa þetta bara eins og við værum að sýna í New York, París eða Róm. Þetta minnir á íslenska fótboltaliðið – hvers vegna ekki við? Við segjum: Hvers vegna ekki hér? Það virðist ætla að skila sér. Þó að þetta séu listamenn sem eru þekktir og alþjóðlegir þá koma þeir.“ Er það ekki af því þið hjón eruð svo þekkt og alþjóðleg? „Jú, eflaust. Við erum auðvitað vinir í bransanum.“ Kristján, bróðir Sigurðar er á listanum yfir þá sem sýna í ár. „Hann er einn af uppáhaldslistamönnunum mínum, hann Kristján bróðir. Við erum búin að sýna hér alla nema Ólaf Elíasson og honum hefur alltaf verið boðið en hann er bara svo upptekinn. Hann er náttúrlega bara orðinn stórfyrirtæki og gerir það vel á sinn hátt.“ Þó sýningin heiti Rúllandi snjóbolti þá rúllar hún ekki víðar heldur verður á Djúpavogi út sumarið. Sigurður stefnir líka að því að skilja eitthvað fallegt eftir fleira en minningar um flotta sýningu. „Við erum að gróðursetja. Ég sé fyrir mér að einhvern tíma verði vísir að nútímalistasafni á Djúpavogi og til að láta þá sýn rætast bað ég tvo félaga mína um að gefa hingað öflug listaverk. Ég geri slíkt hið sama, ég tók með mér risastórt verk frá Kína sem ég ætla að gefa. Verkin verða á sýningunni. Þetta er bara byrjunin. Ég sé ekki hvað væri því til fyrirstöðu að það væri alvöru Modern Art musemum hér á Djúpavogi, það þarf ekki að vera stórt, það þarf bara að vera sterkt.“ Ekki kveðst Sigurður hafa fundið listasafninu stað en hefur ekki áhyggjur af því. „Hér er miklu klárara fólk en ég sem mun gera það.“ Eggin, verk Sigurðar rétt við bryggjuna á Djúpavogi, eru sívinsælt skoðunarefni. „Þar sem ég stend sé ég að það er krökkt af fólki kringum eggin að láta taka mynd af sér,“ segir listamaðurinn glaðlega. „En nú er konan að toga í mig, finnst víst ég vera of fjölmiðlaglaður!“ Hér er svo listi yfir þá sem sýna í Bræðslunni á Djúpavogi í ár: Íslenskir listamenn: Arna Óttarsdóttir, Árni Páll Jóhannsson, Berglind Ágústsdóttir, Dagrún Aðalsteinsdóttir, Egill Sæbjörnsson, Elín Hansdóttir, Finnbogi Pétursson, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Hekla Dögg, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Kristján Guðmundsson, Magnús Pálsson, Margrét Blöndal, Olga Bergmann, Ólöf Nordal, Ragna Róbertsdóttir, Ragnar Kjartansson, Rúna Þorkelsdóttir, Rúrí, Sigurður Guðmundsson, Þór Vigfússon. Listamenn við Rijksakademie, Amsterdam í Hollandi eru: Christine Moldrickx, Eva Spierenburg, Josefin Arnell, Juliaan Andeweg, Marije Gertenbach, Matthijs Munnik, Mercedes Azpilicueta, Pauline Curnier Jardin, Robbert Weide, Tamar Harpaz.
Menning Mest lesið Galopnar sig og segist ætla að breyta hlutunum Lífið Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Gagnrýni Baunar á kókaða söngkonu fyrir baktal Tónlist „Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ Lífið Skilin að borði og sæng eftir 28 ára hjónaband Lífið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið „Rétturinn sem fjölskyldan þín mun elska og biðja um aftur og aftur“ Lífið Frumsýning á Vísi: Iceguys trylla þjóðina enn og aftur í nýju myndbandi Tónlist Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Menning Útbjó lágkolvetna prógram fyrir systur sína sem léttist strax og fékk meiri orku Lífið Fleiri fréttir Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Heiður að fá að segja sögu kvennanna sem ruddu brautina „Kunna ekki að reikna, kunna svo ekki að skammast sín“ „Stefán er að hengja bakara fyrir að vera ekki smiður“ Sveppi, Ari Eldjárn og Valdimar minnast Róberts Arnar á tónleikum Sakar rithöfunda um að vilja forðast umræðuna Norræni skálinn á heimssýningunni í Osaka hlaut gullverðlaun Fólk vilji ekki bara sjá þetta á Instagram Með Banksy í stofunni heima Afgangsgler fær nýtt líf á sýningu í HAKK gallerý Segir strákum að hætta í bandarísku efni: „Eins og við séum í málhöltu úthverfi í Nebraska“ Innblástur frá handanheiminum Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Skortur á viðtengingarhætti hjá Laufeyju sé hluti af stærri þróun Uppselt á fimmtíu sýningar á Línu Langsokk Óbeisluð rómantík á örlagaríku stefnumóti Geislandi Vigdís og gat á skónum sem mátti ekki sjást Leikari, óperusöngvarar og sjómaður vilja stýra óperunni Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Gamla TR-húsinu umbreytt í Hlemm.haus: „Augljóst að þörfin var gríðarleg“ Nanna Rögnvaldardóttir hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Stórtónleikar og flugeldasýning að vanda á Ljósanótt Neðanjarðarpartý og menningarveisla fyrir öll vit Sjá meira