Viðskipti erlent

Venesúela senn uppiskroppa með reiðufé

Sæunn Gísladóttir skrifar
Efnahagslegar og pólitískar óeirðir hafa geisað í Venesúela á árinu.
Efnahagslegar og pólitískar óeirðir hafa geisað í Venesúela á árinu. Vísir/EPA
Óttast er að Venesúela geti orðið uppiskroppa með reiðufé innan árs. Landið hefur staðið frammi fyrir djúpri kreppu og alls kyns skorti undanfarið árið.

CNN greinir frá því að seðlabanki Venesúela eigi einungis eftir um 11,9 milljarða bandaríkjadala í gjaldeyrisforða, samanborið við 30 milljarða bandaríkjadala árið 2011. Framundan eru skuldagreiðslur, frá og með október þarf ríkisstjórnin að greiða 4,7 milljarða bandaríkjadala skuldir í nokkrum greiðslum.

Landsmenn hafa staðið frammi fyrir matarskorti, lyfjaskorti á spítölum og pólitískum óeirðum undanfarið ár. Sérfræðingar telja að ríkis­stjórnin muni einbeita sér að því að greiða niður skuldir frekar en að bæta úr skortinum. CNN hefur eftir Russ Dallen, sérfræðingi í Venesúela og eiganda í Caracas Capital, að Venesúela muni verða uppiskroppa með reiðufé innan árs.

Sérfræðingar eru sammála um að Venesúela eigi ekki nóg reiðufé til að endurgreiða skuldir næstu tvö árin.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×