Með kaffibar í eldhúsinu Vera Einarsdóttir skrifar 9. september 2016 13:30 Svana er mikil kaffikona og byrjar alla morgna við kaffivélina. Vísir/Auðunn
Svana Rún Símonardóttir, ráðgjafi í starfsendurhæfingu hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði á Akureyri, er fagurkeri fram í fingurgóma og nýtur þess að raða fallegum hlutum í kringum sig. Hún hefur útbúið lítinn kaffibar í eldhúsinu með krítarvegg og sérsmíðuðum hillum úr Vaglaskógi. Hún fer mikið á flóamarkaði og elskar Rúmfatalagerinn. Svana hefur alltaf lagt mikið upp úr því að halda fallegt heimili og haft mikla þörf fyrir að skreyta og gera fínt í kringum sig. „Foreldrar mínir og systir ráku blómabúð á Dalvík um áratugaskeið. Ég hugsa að skreytiáhuginn komi þaðan,“ segir Svana. Hún bjó í Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi í á áttunda ár en flutti heim í lok árs 2014. Hún keypti hús í Langholtinu á Akureyri fyrir tæpu ári og er búin að koma sér vel fyrir. „Ég fór út með ferðatösku en kom heim með 40 feta gám,“ segir hún og hlær en mikið af eigum hennar er eins og gefur að skilja frá árunum ytra. „Ég var dugleg að fara á flóamarkaði og í Ullared í Svíþjóð sem er stærsta vöruhús Skandinavíu. Hér heima er Rúmfatalagerinn hins vegar í mestu uppáhaldi. Þar er oft hellingur af flottum vörum á frábæru verði,“ segir Svana sem kaupir ekki dýra hluti heldur skiptir frekar út. „Ef ég fæ eitthvert fínerí að gjöf blanda ég því svo bara saman við hitt.“Að mati Svönu er fólk oft feimið við að nota gamla skrautmuni af því að þeir teljast ekki nýjasta nýtt. Vísir/AuðunnSvana segist frekar kaupa sér hluti en föt en er líka dugleg að grynnka á og hefur haldið þó nokkra flóamarkaði í bílskúrnum. „Ég minnkaði talsvert við mig þegar ég flutti norður og hreinlega varð að losa um.“ Svana er að sögn mikil kaffikona og ákvað að útbúa lítinn kaffibar í nýja eldhúsinu. „Ég skoða frekar hönnunarblöð og Pinterest en að horfa á sjónvarp og sankaði að mér hugmyndum þar. Mig langaði að vera með krítarvegg og það var minnsta mál. Ég held ég hafi málað tvær umferðir með krítarmálningu og svo er bara hægt að leika sér með krítina að vild. Ég fann hins vega ekki hillur sem pössuðu við eldhúsinnréttinguna sem er viðarlituð og fékk Benjamín Davíðsson í Skógræktinni í Vaglaskógi til að saga fyrir mig hillur eftir máli. Hann gerði svo sams konar náttborð fyrir mig í svefnherbergið.“ Borðin sem Svana er með í kaffikróknum sem stendur eru reyndar aðeins til bráðabirgða. „Ég ætla að fá Benjamín til að gera fyrir mig borð á hjólum í stíl við hillurnar sem ég get dregið fram svo hægt sé að sitja við það allan hringinn en annan hvern mánuð er ég með fimm börn á heimilinu og því gott að hafa plássið svolítið sveigjanlegt,“ segir Svana sem reynir yfirleitt að hugsa hlutina bæði út frá praktísku og fagurfræðilegu sjónarhorni. „Ég viðurkenni þó að ég næ ekki alltaf að vera praktísk,“ segir hún og hlær.Það fer ekki milli mála hvert á að fara til að ná í kaffið.Vísir/AuðunnÁ kaffibarnum er Svana svo með ýmiss konar bolla, glös, kerti, blóm, skraut og annað tilheyrandi. „Mér finnst ofsalega gaman að raða og blanda saman gömlu og nýju en það er ótrúlegt hvað það getur breytt miklu að raða hlutum upp á nýtt,“ segir Svana. Að hennar mati er fólk oft feimið við að nota gamla hluti og skrautmuni af því að þeir teljast ekki nýjasta nýtt. „Oft er hægt að gefa þessum hlutum nýtt líf með því að raða þeim upp á nýtt og stilla þeim upp með öðru.“ Spurð að því hvort ekki sé mikið verk að þurrka af öllu skrautinu skellir hún upp úr. „Ég fæ þessa spurningu iðulega en staðreyndin er sú að mér finnst það ekkert mál. Yfirleitt nota ég tækifærið og raða upp á nýtt og er oftar en ekki spurð hvort ég hafi verið að fá mér vasa eða blóm en get þá bent á að þessir hlutir hafi bara verið annars staðar. Það er því alltaf hreyfing á hlutunum hjá mér.“ Svana hefur tekið að sér að hjálpa vinum og vandamönnum við að gera fínt á heimilum sínum. Hún heldur úti Instagram-síðunni Svanasimonardottir-Hús og heimili og fær mikið af fyrirspurnum. „Þetta er bara áhugamál og mér finnst voða gaman að geta orðið að liði.“ Svana mun jafnframt opna heimili sitt fyrir áhorfendum Stöðvar 2 á nýju ári í þættinum Falleg íslensk heimili en þar verður heimilið skoðað í krók og kring.Svana hefur gaman af því að raða og segir það geta breytt miklu að breyta uppröðun. Þannig öðlist hlutir oft nýtt líf.Vísir/Auðunn
Hús og heimili Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Fleiri fréttir Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Sjá meira