Þjálfarinn í stuði inn á vellinum og Hattarmenn á sigurbraut Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2016 21:27 Viðar Örn Hafsteinsson Vísir/Anton
Höttur féll úr Domino´s deildinni í fyrravor en það lítur út fyrir það að strákarnir á Egilsstöðum hafi sett stefnuna á það að endurheimta sætið sitt strax í vetur. Hattarliðið hefur unnið tvo góða sigra í fyrstu tveimur umferðum 1. deildar karla í körfubolta en liðið vann 31 stigs sigur á FSu í kvöld. FSU féll einmitt með Hetti á síðustu leiktíð. Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, lék ekki með liðinu í Domino´s deildinni í fyrra en hann hefur nú tekið skóna fram að nýju. Viðar skoraði 20 stig á aðeins 18 mínútum í kvöld og hefur þar með skorað 34 stig á 34 mínútum í fyrstu tveimur leikjunum. Viðar setti niður þrjá þrista alveg eins og í fyrsta leiknum og var einnig með fimm stoðsendingar á strákana sína á móti FSU í kvöld. Ragnar Gerald Albertsson var stighæstur hjá Hetti með 23 stig en hann kom til liðsins frá Keflavík. Bandaríkjamaðurinn Aaron Moss var með þrennu (18 stig/18 fráköst/10 stoðsendingar) og Mirko Stefan Virijevic gældi líka við þrennuna (9 stig/10 fráköst/6 stoðsendingar). Terrence Motley var langatkvæðamestur hjá FSu með 36 stig og 16 fráköst. Svavar Ingi Stefánsson skoraði 10 stig. Breiðablik og Höttur eru bæði með fullt hús eftir tvær umferðir en bæði Valur og Hamar, sem unnu leik sinn í fyrstu umferð eiga leik inni á efstu liðin.Höttur-FSu 102-71 (29-13, 22-13, 20-25, 31-20)Höttur: Ragnar Gerald Albertsson 23, Vidar Orn Hafsteinsson 20/4 fráköst/5 stoðsendingar, Aaron Moss 18/18 fráköst/10 stoðsendingar, Mirko Stefan Virijevic 9/10 fráköst/6 stoðsendingar, Atli Geir Sverrisson 8/5 fráköst, Hreinn Gunnar Birgisson 8, Sigmar Hákonarson 7/5 stoðsendingar, Brynjar Snær Grétarsson 4, Gísli Þórarinn Hallsson 3, Bjartmar Halldórsson 2.FSu: Terrence Motley 36/16 fráköst, Svavar Ingi Stefánsson 10/7 fráköst, Sigurður Jónsson 6, Hilmir Ægir Ómarsson 6, Ari Gylfason 6/6 fráköst, Hörður Jóhannsson 3, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson 2, Jón Jökull Þráinsson 2.
Dominos-deild karla Íslenski körfuboltinn Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Sjá meira