Glamour

Kylie hóf tónlistarferil án þess að segja neinum

Ritstjórn skrifar
Kylie Jenner getur núna titlað sig sem söngkona.
Kylie Jenner getur núna titlað sig sem söngkona. skjáskot/Instagram
Ungstirnið Kylie Jenner er greinilega margt til listana lagt en nú hefur komið í ljós að hún hóf tónlistarferil í sumar, án þess að láta neinn vita. Hún gengur undir dulnefninu Terror Jr.. Fyrsta lagið sem Terror Jr. gaf út var fyrir gloss auglýsingu fyrir Kylie Cosmetics í sumar. Þá voru sögusagnir um að Kylie væri í raun að syngja lagið og færi undir nafninu Terror Jr. til þess að fela það. 

Nú hefur komið í ljós að Kylie Jenner er skráð sem söngkona lagsins eins og má sjá hér fyrir neðan. Einnig er gloss myndbandið hálfpartinn alveg eins og tónlistarmynband. Plötuumslag lagsins svipar einnig til Kylie Lip Kit umbúðanna. Einnig hafði enginn heyrt um Terror Jr. fyrir auglýsinguna. Lagið sem má heyra í henni heitir "Three Strikes" og var fyrsta lag þessarar dulnefndu söngkonu.

Það verður að teljast ótrúlegt að Kylie hafi gefið út lög án þess að nokkur vissi af því að það væri hún. Við bíðum spenntar eftir meiri tónlist frá Jenner.

. . . Baby know that I come . . .

A photo posted by Terror Jr (@terror.jr) on






×