Lífið er tengsl Jóna Hrönn Bolladóttir skrifar 16. nóvember 2016 07:00 Einhvern tíma skömmu fyrir jól, þegar faðir minn var ungur prestur og barnakarl norður í Laufási við Eyjafjörð, skrapp hann í útréttingar til Akureyrar. Þá tók hann þá skyndiákvörðun að hann gekk inn í skartgripaverslun Sigtryggs og Péturs og festi kaup á eyrnalokkum handa mömmu minni að færa henni í jólagjöf. Hann gekk út með gjöfina í vasanum og hjartslátt fyrir brjóstinu enda vissi hann að það stóð illa á fyrir þessi jól og nú hafði hann ráðstafað meiru en hann réði við. Er hann gekk inn Hafnarstrætið mætti hann Hólmgrími bónda í Ystuvík. Og sem þeir hafa heilsast segir Hólmgrímur: Bolli minn, þú ert með stórt og gestkvæmt heimili og mig langar til að mega létta aðeins undir fyrir þessi jól. Með þeim orðum rétti hann pabba lokað umslag. Föður mínum brá í brún en vissi að ekki tjáði að mótmæla sveitarhöfðingjanum Hólmgrími, svo hann tók við gjöfinni. Er heim var komið og umslagið opnað lá þar upphæð sem samsvaraði eyrnalokkunum. Þessi óvænta velgjörð bóndans í Ystuvík og vitundin um að eiga nágranna sem hugsaði svona hlýtt til fjölskyldu hans bjó alltaf með föður mínum. Nú nálgast aðventan, þessi myrki og mikilvægi tími þegar við göngum í sjálf okkur og horfum um leið út fyrir eigin persónu. Aðventa og jól eru tengslahátíð og við vitum að gefandi og uppbyggjandi tengsl auka öryggi og gleði í samfélaginu. Ef þú veist um þrengingar sem þú ert fær um að milda þá hvet ég þig til að finna leið til að gera það, annað hvort með beinum hætti eins og Hólmgrímur bóndi eða í gegnum hjálparstofnanir. Inntak sjálfs lífsins eru tengsl. Tengsl snúast um það að gefa og þiggja. Þess vegna er sá sæll sem kann hvort tveggja.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jóna Hrönn Bolladóttir Mest lesið Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen Skoðun
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun