Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar 30. október 2026 09:32 Heilsugæslan Hlíðum á 40 ára starfsafmæli í ár. Stöðin tók formlega til starfa þann 16. maí 1986. Þá var ráðinn yfirlæknir, hjúkrunarforstjóri og móttökuritarar og skráning skjólstæðinga hófst á stöðina. Í júní það ár hófst læknismóttaka tvisvar í viku til að byrja með. Smátt og smátt bættist í hópinn; læknaritari, hjúkrunarfræðingur og læknir, ungbarnavernd tók til starfa og mæðravernd auk heimahjúkrunar og svo skólahjúkrun í Hlíðaskóla 1. september 1986. Stöðin hóf starfsemi í hluta húsnæðis í Drápuhlíð, inni í miðri íbúagötu. Smátt og smátt tók starfsemin yfir allt húsið sem varð að lokum of lítið. Það var því mikill léttir sumarið 2023 þegar stöðin flutti í stærra húsnæði við Skógarhlíð. Það er merkilegt að hugsa til þess að fyrsta formlega heilsugæslustöðin á höfuðborgarsvæðinu tók til starfa árið 1977 svo fyrirbærið heilsugæslustöð eins við þekkjum flest í dag er rétt hálfrar aldar gamalt hér á höfuðborgarsvæðinu. Á þessu tímabili hefur mjög mikið gerst í starfsemi heilsugæslustöðva eins og sést vel í starfsemi Heilsugæslunnar Hlíðum. Í dag eru ríflega 15.500 skjólstæðingar skráðir á stöðina. Starfsmenn eru nær 30 talsins, læknar, námslæknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, ritarar, sálfræðingar og fljótlega bætist vonandi við félagsráðgjafi. Þessir starfsmenn sinna meðal annars móttöku skjólstæðinga alla virka daga, mæðravernd, ungbarnavernd, heilsuvernd aldraðra og skólahjúkrun auk kennslu nema. Það er því óhætt að segja að starfsemin hafi vaxið og dafnað og það er ljóst að það er mikil þörf fyrir þjónustu stöðvarinnar. Eitt af verkefnum Heilsugæslunnar Hlíðum núna á afmælisárinu er að vera í forsvari fyrir skipulagningu Fræðadags Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem verður haldinn 13. nóvember. Yfirskrift dagsins er jöfnuður í heilsu. Margar rannsóknir hafa sýnt að öflug heilsugæsla í nærumhverfi er mjög mikilvæg til að auka jöfnuð í samfélaginu svo það er vel við hæfi að heilsugæsla sem hóf starfsemi sína í húsi í miðri íbúagötu standi í stafni á slíkum degi. Vonandi verður engin miðaldurskrísa í starfsemi heilsugæslunnar og að stjórnendur og stjórnvöld beri gæfu til að hlúa vel að heilsugæslunni og starfsfólki hennar því það skiptir miklu máli fyrir fólkið í landinu sem vill koma til heilsugæslunnar og fá mikilvæga og oft lífsnauðsynlega þjónustu. Höfundur er forstöðumaður Heilsugæslunnar Hlíðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Heilsugæslan Hlíðum á 40 ára starfsafmæli í ár. Stöðin tók formlega til starfa þann 16. maí 1986. Þá var ráðinn yfirlæknir, hjúkrunarforstjóri og móttökuritarar og skráning skjólstæðinga hófst á stöðina. Í júní það ár hófst læknismóttaka tvisvar í viku til að byrja með. Smátt og smátt bættist í hópinn; læknaritari, hjúkrunarfræðingur og læknir, ungbarnavernd tók til starfa og mæðravernd auk heimahjúkrunar og svo skólahjúkrun í Hlíðaskóla 1. september 1986. Stöðin hóf starfsemi í hluta húsnæðis í Drápuhlíð, inni í miðri íbúagötu. Smátt og smátt tók starfsemin yfir allt húsið sem varð að lokum of lítið. Það var því mikill léttir sumarið 2023 þegar stöðin flutti í stærra húsnæði við Skógarhlíð. Það er merkilegt að hugsa til þess að fyrsta formlega heilsugæslustöðin á höfuðborgarsvæðinu tók til starfa árið 1977 svo fyrirbærið heilsugæslustöð eins við þekkjum flest í dag er rétt hálfrar aldar gamalt hér á höfuðborgarsvæðinu. Á þessu tímabili hefur mjög mikið gerst í starfsemi heilsugæslustöðva eins og sést vel í starfsemi Heilsugæslunnar Hlíðum. Í dag eru ríflega 15.500 skjólstæðingar skráðir á stöðina. Starfsmenn eru nær 30 talsins, læknar, námslæknar, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, ritarar, sálfræðingar og fljótlega bætist vonandi við félagsráðgjafi. Þessir starfsmenn sinna meðal annars móttöku skjólstæðinga alla virka daga, mæðravernd, ungbarnavernd, heilsuvernd aldraðra og skólahjúkrun auk kennslu nema. Það er því óhætt að segja að starfsemin hafi vaxið og dafnað og það er ljóst að það er mikil þörf fyrir þjónustu stöðvarinnar. Eitt af verkefnum Heilsugæslunnar Hlíðum núna á afmælisárinu er að vera í forsvari fyrir skipulagningu Fræðadags Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem verður haldinn 13. nóvember. Yfirskrift dagsins er jöfnuður í heilsu. Margar rannsóknir hafa sýnt að öflug heilsugæsla í nærumhverfi er mjög mikilvæg til að auka jöfnuð í samfélaginu svo það er vel við hæfi að heilsugæsla sem hóf starfsemi sína í húsi í miðri íbúagötu standi í stafni á slíkum degi. Vonandi verður engin miðaldurskrísa í starfsemi heilsugæslunnar og að stjórnendur og stjórnvöld beri gæfu til að hlúa vel að heilsugæslunni og starfsfólki hennar því það skiptir miklu máli fyrir fólkið í landinu sem vill koma til heilsugæslunnar og fá mikilvæga og oft lífsnauðsynlega þjónustu. Höfundur er forstöðumaður Heilsugæslunnar Hlíðum.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun