Skoðun

Til kall

Drífa Snædal skrifar

Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi eru ekki náttúruhamfarir sem henda konur. Ofbeldið er ekki óbreytanlegt eða óháð menningu og viðhorfum. En kynferðislegt ofbeldi karla (aðallega) gegn konum (aðallega) þrífst á meðan það er samþykkt. Það að 57 karlar hafi vitað af hópnauðgun í Cornell háskólanum í USA án þess að aðhafast nokkuð segir okkur að í þeim menningarheimi er þyngri félagsleg refsing við því að koma í veg fyrir kynferðisbrot gegn konu en að ljóstra upp um slíkan verknað. Nú eða að það þyki bara í lagi að nauðga. Að karlar eigi hreinlega tilkall til líkama kvenna. Við getum hneykslast á þessu hér norður í Ballarahafi og talið okkur vera betri en þetta, en á sama tíma koma hins vegar skilaboð úr okkar eigin réttarkerfi að karlar sem valda konum skaða þurfa ekki að axla ábyrgð. Örfá kynferðisbrot fara fyrir réttarkerfið hér á landi og af þessum örfáu er sakfellt í enn færri. Líklegasta niðurstaðan ef karl er kærður fyrir nauðgun er að málið verði fellt niður og fari aldrei fyrir dómstóla.

Sú hugmynd að karlar eigi tilkall til líkama kvenna og það sé kvenna að sitja uppi með afleiðingarnar er hluti af nauðgunarmenningu sem gegnsýrir okkar samfélag eins og annars staðar í heiminum. Tilkallið er afsakað með afbökun á samþykki. Það virðist duga að tilkallinn túlki til dæmis peningagreiðslu, instagramskilaboð eða þöng sem samþykki frekar en að láta sig varða hvort raunverulegt samþykki sé til staðar

Enn ein birtingamynd þessa tilkalls er vændi og mansal. Það myndi aldrei þrífast nema fyrir þann fjölda karla sem þykir það sjálfsagt að konur gangi kaupum og sölum. Karlar sem ákveða að kaupa sér aðgang að konum og hirða lítið um afleiðingarnar fyrir konurnar. Því miður þurfa þeir sjaldnast sjálfir að taka afleiðingunum en það stendur vonandi til bóta með nýju frumvarpi dómsmálaráðherra.

Góður fréttirnar eru þær að flestir karlar líta ekki svo á að þeir eigi tilkall til kvenna en hinir eru nógu margir til að valda svo miklum skaða hjá svo mörgum að það er fátt sem hefur meiri áhrif á lífsgæði kvenna en að verða fyrir ofbeldi af hendi karla. Bara ógnin af því að verða fyrir ofbeldi hefur áhrif á öryggi, hegðun og lífsgæði. Því verður ekkert kynjajafnrétti fyrr en tilkallinn er úr sögunni.

Ert þú tilkall?

Höfundur er talskona Stígamóta.




Skoðun

Sjá meira


×