Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar 28. október 2026 06:30 Íslenskir matreiðslumenn hafa á undanförnum árum náð stórkostlegum árangri í alþjóðlegum matreiðslukeppnum og skipað sér í hóp þeirra bestu í heiminum. Íslenska kokkalandsliðið hefur komist á verðlaunapall á síðustu tveimur Ólympíuleikum matreiðslumanna og íslenskir keppendur hafa tvisvar náð verðlaunasæti í Bocuse d’Or, einni virtustu einstaklingskeppni í matreiðslu í heiminum. Þetta er einstakur árangur fyrir jafn fámenna þjóð. Árangurinn á þessu ári hefur ekki síður verið glæsilegur. Gabríel Kristinn Bjarnason, sem varð Ungkokkur Norðurlanda árið 2022, hafnaði í öðru sæti í keppninni Matreiðslumaður Norðurlanda 2026 og Jafet Bergmann Viðarson tryggði sér titilinn Ungkokkur Norðurlanda 2026. Þeir eru báðir í íslenska kokkalandsliðinu sem stefnir hátt á heimsmeistaramótinu í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg dagana 20.–26. nóvember næstkomandi. Þá tryggði Snædís Xyza Mae Jónsdóttir sér sæti í lokakeppni Bocuse d’Or, sem fram fer í Lyon í Frakklandi árið 2027. Snædís er jafnframt fyrsta íslenska konan til að keppa í Bocuse d’Or. Löng saga Klúbbur matreiðslumeistara var stofnaður í febrúar 1972 og strax árið 1974 hófu félagsmenn þátttöku í alþjóðlegum matreiðslukeppnum. Síðan þá hafa íslenskir matreiðslumenn keppt reglulega á alþjóðlegum vettvangi og náð eftirtektarverðum árangri, ekki síst eftir aldamótin. Áratugir af metnaði og sjálfboðaliðastarfi Að baki þessum árangri liggur gríðarlegt starf og ótrúlegur fjöldi vinnustunda. Í gegnum árin hafa fjölmargir matreiðslumenn og aðrir áhugamenn um íslenska matargerð lagt verkefninu lið, nær eingöngu í sjálfboðavinnu. Til að setja umfangið í samhengi má nefna að hver landsliðsmaður leggur að jafnaði um 1.200–1.500 vinnustundir í undirbúning fyrir hvert stórmót. Þetta er vinna sem unnin er samhliða daglegum störfum og fjölskyldulífi, án þess að greidd séu laun fyrir hana. Fyrirtæki sem tengjast veitinga- og matvælageiranum hafa gegnt lykilhlutverki í þessari vegferð. Án þeirra stuðnings hefði þessi árangur einfaldlega ekki verið mögulegur. Þótt matreiðslumenn séu tilbúnir að leggja á sig ómælda vinnu fyrir fagið sitt þarf að standa straum af kostnaði við hráefni, æfingar, búnað, ferðalög og þátttöku í alþjóðlegum keppnum. Fjölmörg fyrirtæki hafa sýnt verkefninu mikla tryggð í gegnum árin og lagt sitt af mörkum til að íslenskir matreiðslumenn geti keppt við þá bestu í heiminum. Ávinningur fyrir íslenska matargerð Þátttaka í alþjóðlegum matreiðslukeppnum hefur haft áhrif langt út fyrir keppniseldhúsin. Sú þekking og reynsla sem matreiðslumenn öðlast við undirbúning og þátttöku í keppnum skilar sér inn á íslenska veitingastaði, meðal annars í þróun nýrra rétta, bættum vinnubrögðum og aukinni notkun á íslensku hráefni. Keppnismatreiðslan hefur einnig verið mikilvægur vettvangur fyrir faglega þróun og miðlun þekkingar milli kynslóða matreiðslumanna. Á undanförnum áratugum hefur íslensk matargerð tekið miklum framförum og í dag er að finna framúrskarandi veitingastaði víða um land. Íslenskt hráefni er í hávegum haft og metnaður fyrir gæðum og fagmennsku hefur aukist. Erlendir ferðamenn hrósa íslenskum veitingastöðum og við Íslendingar njótum þess að hafa aðgang að fjölbreyttri og metnaðarfullri matargerð um allt land. Það eru mikil lífsgæði í jafn fámennu samfélagi og okkar. Stuðningur sem skiptir sköpum Í gegnum tíðina hefur verið unnið mikið starf við að fá hið opinbera til þátttöku í þessu verkefni. Það hefur gengið misvel og stuðningurinn verið mismikill eftir árum. Á sama tíma berum við okkur saman við bestu keppnisþjóðir heims, þar sem Norðurlöndin hafa verið í fremstu röð og notið öflugs stuðnings hins opinbera við keppnisstarfið. Íslenskir matreiðslumenn hafa með elju og dugnaði sýnt að þeir eiga fullt erindi í hóp þeirra bestu í heiminum. Sá árangur sem náðst hefur er afrakstur áratuga starfs, mikillar þekkingar, óeigingjarnrar sjálfboðavinnu og ómetanlegs stuðnings þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem hafa staðið að baki keppendum. Það er árangur sem við getum öll verið stolt af. Höfundur er forseti Klúbbs matreiðslumeistara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matur Kokkalandsliðið Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Skoðun Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun