Skoðun

At­laga að fá­tækt

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Það er löngu tímabært að stjórnvöld taki fátækt barna föstum tökum með skýrri stefnu og aðgerðum sem geta breytt lífi barna og fjölskyldna þeirra. Nú er loksins við völd ríkisstjórn sem hefur ákveðið að taka til hendinni í þessum málum.

Baráttan gegn fátækt og félagslegum ójöfnuði hefur frá upphafi verið eitt af grundvallarmálum Flokks fólksins. Fyrir tæpu ári tók mennta- og barnamálaráðherra þá mikilvægu ákvörðun að ráðast í mótun fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlunar Íslands gegn fátækt barna.

Mér var falin forysta stýrihópsins sem hefur unnið að verkefninu nær sleitulaust síðan. Auk mín skipa hópinn sérfræðingar mennta- og barnamálaráðuneytisins á þessu sviði. Nú liggur afraksturinn fyrir í þingsályktunartillögu með 14 aðgerðum allt til ársins 2031.

Rannsóknir og reynsla fólks

Ný skýrsla forsætisráðuneytisins og Háskóla Íslands um þessi mál verður kynnt á málþingi um fátækt barna fimmtudaginn 29. október kl. 8.30 í Veröld – húsi Vigdísar. Skýrslan var unnin samhliða starfi stýrihópsins og niðurstöðurnar ríma vel við áherslur hópsins.

Samráðið hefur verið afar víðtækt. Um 30 fundir hafa verið haldnir með fulltrúum sveitarfélaga, félagasamtaka, sérfræðingum og foreldrum sem þekkja fátækt af eigin raun. Auk þess bárust 15 umsagnir um áætlunina í Samráðsgátt stjórnvalda. Ábendingarnar hafa haft áhrif á endanlegar tillögur.

Frá orðum til aðgerða

Aðgerðaáætlunin byggir á fjórum stoðum. Endurskoða á barnabætur og annan fjárhagslegan stuðning, jafna tækifæri barna til þátttöku í skóla- og frístundastarfi, einfalda aðgang að þjónustu og setja mælanleg markmið um árangur af aðgerðunum.

Ekkert barn á að þurfa að sitja hjá vegna þess að foreldrar þess hafa ekki efni á æfingagjaldi, búnaði eða skólaferð.

Íbúðahúsnæði er hluti af sömu baráttu

Eitt af því sem kom hvað skýrast fram í samráði stýrihópsins var hversu þungt húsnæðiskostnaður leggst á barnafjölskyldur. Þegar stór hluti tekna fer í húsaleigu verður minna eftir fyrir mat, fatnaði og öllu því sem börn þurfa til eðlilegrar þátttöku í samfélaginu. Það er þess vegna ekki hægt að ræða fátækt barna án þess að ræða húsnæðismálin um leið.

Þarna tengjast verkefni tveggja ráðherra Flokks fólksins með mjög skýrum hætti. Á sama tíma og Inga Sæland hefur beitt sér fyrir heildstæðri stefnu gegn fátækt barna hefur Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra unnið að því að létta húsnæðisbyrði heimilanna og auka húsnæðisöryggi.

Ragnar Þór hefur lagt fram frumvarp um leigubremsu sem á að stöðva mánaðarlegar vísitöluhækkanir húsaleigu þannig að húsaleiga geti einungis hækkað á 12 mánaða fresti sem eykur öryggi og fyrirsjáanleika leigjenda. Alþingi hefur einnig hefur verið samþykkt frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um eflingu almenna íbúðakerfisins, með hærri stofnframlögum ríkisins til að fjölga leiguíbúðum á viðráðanlegum kjörum. Þá hafa verið gerðar breytingar á hlutdeildarlánakerfinu til að auðvelda fólki að eignast húsnæði og samið um uppbyggingu fleiri hlutdeildarlánaíbúða og uppbyggingu á ríkislóðum sem hafa lengi staðið auðar.

Þetta eru ekki aðskilin verkefni heldur ólíkir þættir í sömu baráttu. Allt þetta bætir afkomu barnafjölskyldna, dregur úr óöryggi í húsnæðismálum og stuðlar að jafnari tækifærum fyrir börn.

Baráttunni er ekki lokið

Fyrir tilstuðlan Flokks fólksins hefur ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn á Alþingi tekið stór skref til að bæta kjör þeirra sem standa höllustum fæti í samfélaginu. Við látum ekki duga að tala um fátækt barna heldur leggjum fram áætlun um hvernig draga megi úr henni.

Næsta skref er að leggja þingsályktunartillöguna fyrir Alþingi. Þar vonast ég til að allir stjórnmálaflokkar geti tekið höndum saman og í stuðningi við þessa tímamóta tillögu.

Fátækt barna er ekki einkamál þeirra fjölskyldna sem við hana búa. Hún er samfélagslegt vandamál sem við berum sameiginlega ábyrgð á.

Með áætluninni hefur verið lagður fram traustur grunnur til úrbóta. Það er kominn tími til að láta verkin tala.

Höfundur er þingkona Flokks fólksins og formaður velferðarnefndar Alþingis.




Skoðun

Sjá meira


×