Stigalaus leikur Riley var það síðasta sem hann gerði fyrir Þór Tómas Þór Þórðarso skrifar 11. nóvember 2016 08:30 Jalen Riley hitti ekki einu sinni úr þessu skoti í gær. vísir/anton brink
Jalen Ross Riley, bandarískur leikmaður Þórs Akureyrar í Dominos-deild karla í körfubolta, var í gærkvöldi sagt upp störfum hjá liðinu og nýr Kani fenginn í staðinn. Riley kvaddi á versta mögulega máta en bakvörðurinn sem nýliðarnir treystu á að skora fyrir sig setti ekki eitt einasta stig í 97-86 tapi gegn Íslandsmeisturum KR í DHL-höllinni í gærkvöldi. Hann spilaði 16 mínútur og tók sjö skot en hitti ekki úr einu einasta. Það var svo tilkynnt á heimasíðu Þórs eftir leik að samningi hans hefði verið sagt upp. Riley spilaði 33 mínútur að meðaltali í leikjunum sex sem búnir eru og skoraði 18,2 stig að meðaltali í leik. Í hans stað sömdu Þórsarar við George Beamon sem er framherji en ekki bakvörður eins og Riley. Hann er 187 cm á hæð og 80 kg, að því fram kemur á heimasíðu Þórs. Hann spilaði síðast með Manhattan Jaspers þar sem hann skoraði að meðaltali 19 stig í leik og tók sjö fráköst. Beamon verður klár í slaginn þegar nafnar Þórs úr Þorlákshöfn kíkja í heimsókn í næstu viku. Þór Akureyri er í tíunda sæti Dominos-deildar karla með fjögur stig eftir sex leiki.
Dominos-deild karla Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Sport Fleiri fréttir Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Sjá meira