Framtíð bankastjórans í óvissu

Ríkisendurskoðun telur að Landsbankinn hefði þurft að „fylgja betur þeim meginkröfum að selja mikilvægar eignir í opnu og gagnsæju söluferli eða rökstyðja ella frávik frá þeim kröfum“, eins og segir í skýrslunni.
„Að mati stofnunarinnar hafa vinnubrögð bankans við eignasölur á undanförnum árum skaðað orðspor hans auk þess sem hann lét ekki alltaf á það reyna með fullnægjandi hætti hvort fá hefði mátt hærra verð fyrir eignirnar,“ segir Ríkisendurskoðun jafnframt og bætir við að bankaráðið þurfi að grípa til ráðstafana til að endurheimta það traust sem bankinn hefur á undanförnum árum stefnt í hættu með verklagi sínu við sölu á verðmætum eignum.
Hvorki formaður bankaráðsins né stjórnarformaður Bankasýslunnar, sem heldur utan um 98 prósenta hlut ríkisins í bankanum, vill tjá sig um það hvort bankastjóranum, Steinþóri Pálssyni, sé sætt í embætti.
„Meðan bankastjórinn er við stjórn bankans þá nýtur hann trausts bankaráðsins. En ég vil ekkert tala um efni skýrslunnar eða okkar aðgerðir í dag. Við eigum eftir að fara betur yfir þessa skýrslu,“ segir Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er sérstaklega fjallað um sölu Landsbankans á eignarhlutum sínum í Vestia og Icelandic Group árið 2010, Promens árið 2011 og jafnframt Framtakssjóði Íslands og IEI árið 2014.
Einnig er fjallað um söluna á hlutum bankans í Borgun og Valitor árið 2014. Bendir Ríkisendurskoðun á að allar þessar sölur hafi farið fram í lokuðu ferli og í sumum tilvikum hafi líklega fengist lægra verð fyrir eignarhlutina en vænta mátti miðað við verðmætin sem þeir geymdu.
Þá er Landsbankinn gagnrýndur sérstaklega fyrir að hafa ekki aflað sér nægilegra upplýsinga um greiðslukortafyrirtækið Borgun, meðal annars um aðild fyrirtækisins að Visa Europe Ltd. Segir Ríkisendurskoðun erfitt að meta þá fjárhæð sem Landsbankinn fór á mis við þegar fyrirtækið var selt Visa International, þar sem hagnaður Borgunar (um 6,2 milljarðar) hafi orðið til eftir sölu eignarhlutarins.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Tengdar fréttir

Endanleg skýrsla um Borgun er væntanleg
Von er á endanlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Borgunarmálið öðrum hvorum megin við helgina. Verið er að leggja lokahönd á skýrsluna og venja er að málsaðilar fái einn til tvo daga til að lesa slíkar skýrslur yfir áður en þær eru birtar opinberlega.

Ríkisendurskoðun gagnrýnir verklag Landsbankans við eignasölur síðustu sex ár
Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar vegna sölu eigna Landsbankans kom út í morgun.

Á meðan Steinþór er bankastjóri nýtur hann trausts bankaráðs
Formaður bankaráðs Landsbankans vill ekki svara því hvort bankastjóri bankans njóti trausts til að sinna starfinu áfram í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar um eignasölur bankans.

Landsbankinn gleymdi líklegast að spyrja forsvarsmenn Borgunar út í Visa Europe
Í drögum að skýrslu sem Ríkisendurskoðun vinnur nú að vegna sölu Landsbankans á hlut sínum í kortafyrirtækinu Borgun kemur fram að á fundum með stofnuninni í ágúst og september síðastliðnum hafi Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, viðurkennt að bankinn hafi að öllum líkindum gleymt að spyrja forsvarsmenn Borgunar út í Visa Europe.