„Useless er lína úr austfirsku hreindýraleðri sem er væntanleg á markað á næsta ári,“ útskýrir Elísabet Karlsdóttir fatahönnuður en hún skipar hönnunartvíeykið Alvöru ásamt vöruhönnuðinum Ágústu Sveinsdóttur.
Í hönnun sinni leitast þær við að skapa nýjar og tilraunakenndar leiðir í efnisnotkun og horfa ekki einungis í notagildið heldur einnig í það hvaðan efnið kemur og hvernig það verður til.

Hún segir þær Ágústu vilja með þessu vekja athygli á íslensku hráefni og meðal annars hreindýraleðri. Fram að þessu hafi það einungis verið nýtt að hluta og mikið af skinnum fari til spillis þar sem þau séu aukaafurð af veiðum.
„Það kveikti í okkur Ágústu að vinna með það en markmið verkefnisins er að skapa framleiðslumöguleika með sjálfbærni að leiðarljósi. Þá eru skinnin öll svo ólík af villtum dýrum sem er skemmtilegt og verður hluti af hönnuninni. Það flækir að sjálfsögðu hönnunarferlið að vinna með efni sem ekki er hægt að kaupa úti í búð.
Við nálgumst skinnin í samvinnu við fólk fyrir austan sem safnar þeim saman fyrir okkur. Skinnin eru send í sútun á Sauðárkróki, einu sútunarverksmiðju landsins. Það má því segja að verkefnið sé líka samfélagslegt, við erum í samstarfi við fólkið á svæðinu og viljum vinna með það sem hægt er að gera á Íslandi,“ segir Elísabet.

Von er á Silfru á markað á nýju ári.
„Useless og Silfra eiga það sameiginlegt að vera unnin út frá hráefninu,“ segir Elísabet.
Um helgina fór fram sýning á Useless í formi innsetningar þar sem hönnun, ljósmyndir og vídeó mætast í einni heild. Einnig var gefið út zine (smátímarit) í takmörkuðu upplagi sem allir sýningargestir fá að gjöf.
Nánar má forvitnast um hönnun Alvöru á alvarareykjavik.is.
