Verst að fá ekki tækifæri til að kveðja Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. desember 2016 06:00 Stefan Bonneau er einn allra besti leikmaður sem hefur spilað á Íslandi en hann skemmti landsmönnum með frábærum tilþrifum. Fréttablaðið /Ernir „
Þetta kom mér á óvart því ég bjóst ekki við því að ég myndi yfirgefa Njarðvík á þessari leiktíð,“ segir bandaríski körfuboltamaðurinn Stefan Bonneau sem Njarðvíkingar ákváðu að semja ekki við aftur, en samningur hans rann út í desember. Bonneau hefur heillað körfuboltaáhugamenn með tilþrifum sínum síðan hann kom til landsins í janúar 2014 en dvöl hans á Íslandi er lokið í bili. „Mér var sagt að Njarðvík vildi núna vera með stóran mann,“ segir Bonneau sem hefur undanfarin misseri vegna meiðsla sinna deilt mínútum með nokkrum öðrum bandarískum leikmönnum sem eru alltaf stærri og spila undir körfunni. Þetta hefur verið eitt af aðalumræðuefnunum í kringum Njarðvík en nú þegar Bonneau er heill héldu flestir að hann yrði fyrir valinu en svo var ekki. Þetta kom þessum smáa en knáa bakverði verulega á óvart en skilaboðin fékk hann ekki frá Daníel Guðna Guðmundssyni, þjálfara liðsins.Bestu stuðningsmennirnir „Danni sagði mér ekki frá þessu. Ég fékk bara skilaboð um þetta og vissi ekki alveg hvað ég átti að segja. Ég fékk sjokk þegar mér var sagt þetta ef ég á að vera heiðarlegur. Ég vissi ekki hvað ég átti að segja eða gera,“ segir Bonneau sem hugsar þó bara með hlýhug til Njarðvíkur. „Þó ég hafi ekki verið alveg sáttur við hvernig þetta var afgreitt yfirgef ég ekki Njarðvík með óbragð í munni. Ég elska fólkið þarna og stuðningsmenn Njarðvíkur eru þeir bestu sem ég hef spilað fyrir. Ég elska allt á Íslandi og mun sérstaklega sakna krakkana sem gáfu mér mikið og höfðu svo mikinn áhuga á öllu sem ég og liðið vorum að gera. Verst fannst mér að fá ekki tækifæri til að kveðja,“ segir Bonneau.Tók tíma að venjast Bonneau hefur margsinnis endurtekið hversu mikið hann elskar Ísland en sterk umræða um að hann myndi fá ríkisborgararétt skapaðist fyrr á árinu. Hann minnist þess þegar hann kom hingað fyrst um miðjan vetur. Bonneau er ekki frá Flórída eða Kaliforníu og vandist vondu veðri á uppeldisslóðum sínum í New York, en vetrarhörkurnar voru miklar þegar hann lenti fyrst. „Ég gat bara ekki vanist veðrinu fyrstu mánuðina hérna. Það var alltaf snjór og rok. Ég var að reyna að útskýra þetta fyrir vinum mínum en það þurfti að vera hér til að skilja þetta og aðlagast. Það gerðist svo oft þegar ég var utandyra að rokið feykti mér til og frá. Ég var reyndar mjög hrifinn af sólarljósi allan sólarhringinn,“ segir Bonneau sem er ekki bara góður í körfubolta heldur hefur útgeislun hans á velli gert hann að einum vinsælasta leikmanni deildarinnar undanfarin ár. „Ég elska að spila leikinn. Ég brosi bara því ég elska að spila körfubolta. Það var líka svo gaman hérna fyrsta tímabilið. Mirko [Stefán Virijevic] var herbergisfélagi minn og svo voru svo flottir strákar þarna eins og Magic, Ólafur Helgi og Hjörtur Hrafn. Maðurinn sem ég mun sakna mest er samt Logi Gunnarsson. Það er kóngurinn í Njarðvík og minn maður að eilífu. Logi Gunnarsson er langbesti samherji sem ég hef haft á ferlinum,“ segir Bonneau.Gæti komið aftur Bonneau var varla búinn að ná áttum eftir að samningurinn var ekki endurnýjaður þegar danska liðið Svendborg Rabbits með aðstoðarlandsliðsþjálfarann Arnar Guðjónsson í brúnni brást við skjótt. Bandaríski bakvörðurinn segist hafa gaman að því að prófa nýja deild. Hann útilokar ekki að koma aftur til Íslands og eiginlega langt frá því. „Auðvitað mun ég skoða tilboð frá Íslandi ef eitthvað berst. Ég mun aldrei hafna neinu blindandi frá Íslandi án þess að skoða það. Ísland er góður staður og þangað væri ég mikið til í að koma aftur. Deildin er skemmtileg og landið gott. Ég veit ekki hvað gerist. Við sjáum til hvað gerist í sumar eða jafnvel bara í janúar,“ segir Stefan Bonneau.
Dominos-deild karla Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Fleiri fréttir Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Sjá meira