Bilað brot leiddi til bláa spjaldsins | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. desember 2016 14:45
Fólskulegt brot leit dagsins ljós í leik KR og Þróttar í 1. deild karla í handbolta í gærkvöldi í leik sem KR-ingar unnu með tíu marka mun, 37-27. Átta mínúturm fyrir leikslok komst Viktor Orri Þorsteinsson, leikmaður KR, inn í sendingu Þróttarans Óttars Filipps Péturssonar og brunaði fram völlinn þar sem Óttar stóð einn í vörninni. Eitthvað fór staða leiksins og þessi mistök Óttars í leikstjórnandann því hann hélt í smástund að hann væri kominn í bandarísku fjölbragðaglímuna og tók „þvottasnúruna“ á Viktor Orra. Stórhættulegt og sturlað brot. Dómararnir dæmdu aukakast um leið og stöðvuðu leikinn á meðan þeir ákváðu hver refsingin yrði. Óttar Filipp vissi alveg að þátttöku hans var lokið og gekk af velli á meðan dómaraparið ræddi saman. Niðurstaðan var að sjálfsögðu rautt spjald en því fylgdi svo bláa spjaldið sem þýðir að Óttar Filipp er eðlilega á leið í bann. Viktor Orri skoraði eitt mark fyrir KR í leiknum sem er að gera flotta hluti undir stjórn Ágústar Jóhannssonar en liðið er í öðru sæti deildarinnar með 19 stig, fimm stigum á eftir toppliði Fjölnis sem er búið að vinna alla tólf leiki sína. Atvikið úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira