Handbolti

Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut

Sindri Sverrisson skrifar
Dagur Arnarsson fór á kostum fyrir ÍBV í kvöld.
Dagur Arnarsson fór á kostum fyrir ÍBV í kvöld. Vísir

ÍBV komst á sigurbraut í Olís-deild karla í handbolta í kvöld með sigri gegn Þór. Þar með komust Eyjamenn tveimur stigum frá Þórsurum í baráttunni um miðja deild.

Óhætt er að segja að Dagur Arnarsson hafi verið í aðalhlutverki í kvöld en hann skoraði 12 mörk úr 16 skotum fyrir ÍBV eða þriðjung marka liðsins í 37-31 sigri. Fimm marka hans komu af vítalínunni.

Heimamenn í ÍBV, sem tapað höfðu síðustu tveimur leikjum, voru einu marki yfir í hálfleik, 17-16, en bjuggu sér svo fljótt til meira forskot í seinni hálfleiknum og unnu að lokum öruggan sigur.

Dagur var maður leiksins en þeir Anton Frans Sigurðsson og Magnús Dagur Jónatansson komu næstir á eftir honum hjá ÍBV með fimm mörk hvor. Þá varði Petar Jokanovic 15 af 42 skotum eða 36%.

Hjá Þórsurum var Hafþór Már Vignisson markahæstur með sex mörk og þeir Oliver Möller Christensen og Bertram Simonsen skoruðu fimm mörk hvor.

Þórsarar eru áfram með 4 stig en ÍBV komst upp að hlið Vals í 5.-6. sætinu með sex stig. Valsmenn eiga þó leik til góða við Víking sem stendur yfir og eiga þar tvö stig vís.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×