Handbolti

Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba

Sindri Sverrisson skrifar
Haukur Þrastarson er í lykilhlutverki hjá Rhein-Neckar Löwen.
Haukur Þrastarson er í lykilhlutverki hjá Rhein-Neckar Löwen. Getty/Alex Grimm

Haukur Þrastarson fór á kostum fyrir Rhein-Neckar Löwen í kvöld á útivelli gegn stórliði Kiel en heimamenn unnu 37-36 með sigurmarki á síðustu sekúndu, í þýsku 1. deildinni í handbolta. Viggó Kristjánsson lét einnig til sín taka í 34-30 sigri Erlangen á Wetzlar, liðinu sem Rúnar Sigtryggsson stýrir.

Eric Johansson tryggði Kiel dísætan sigur með marki úr víti þegar leiktíminn var runninn út í kvöld, í æsispennandi slag við Löwen.

Haukur var næstmarkahæstur hjá Löwen með sjö mörk en gaf líka langflestar stoðsendingar eða sex talsins. Það dugði þó ekki til að þessu sinni og er Kiel nú með 17 stig á toppi deildarinnar en Löwen er með sjö stig í 11. sæti.

Andri Már Rúnarsson hefur misst af allri leiktíðinni með Erlangen vegna meiðsla og gat ekki beitt sér í kvöld þegar liðið mætti lærisveinum pabba hans, Rúnars Sigtryggssonar, í Wetzlar.

Erlangen vann engu að síður fjögurra marka sigur, 34-30, og skoraði Viggó úr öllum fimm skotum sínum í leiknum auk þess að eiga þrjár stoðsendingar.

Wetzlar er sem fyrr á botni deildarinnar með aðeins tvö stig úr níu leikjum en Erlangen hefur verið á miklu skriði og er með 11 stig í 4. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×