HBStatz: Markvarslan hrynur í seinni hálfleik hjá íslensku markvörðunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2017 16:00 Björgvin Páll Gústavsson. Vísir/Getty
Markverðir íslenska handboltalandsliðsins eru sem fyrr í mikilvægum hlutverkum og það er fróðlegt að skoða betur markvörsluna í fyrstu þremur leikjum Íslands á HM í handbolta. HBStatz heldur vel utan um alla tölfræði íslenska liðsins á HM í Frakklandi og hefur nú gert athyglisverðan samanburð á markvörslu Íslands eftir hálfleikjum á mótinu til þessa. Íslensku markverðirnir hafa verið mjög góðir í fyrri hálfleikjum leikjanna þar sem þeir hafa varið sjö skot að meðaltali og alls 38 prósent allra skot sem hafa komið á þá. Markvarslan hrynur hinsvegar í seinni hálfleiknum þar sem markverðirnir hafa aðeins varið fjögur skot að meðaltali og 22,6 prósent skota sem hafa komið á þá. Markvarslan fellur því um fimmtán prósent milli hálfleikja og því næstum því tvöfalt meiri í fyrri hálfleik en þeim síðari. Það munar mest um markvörsluna úr hornum og úr vítum. Í fyrri hálfleikjunum hafa íslensku markverðirnir varið 50 prósent skota úr hornum og 74 prósent vítanna. Í þeim seinni hafa þeir aðeins náð að verja sautján prósent skot úr hornum og fjórtán prósent vítanna. Munurinn var örugglega enn meiri eftir tvo fyrstu leikina því Aron Rafn Eðvarðsson átti flotta innkomu í seinni hálfleiknum í jafnteflisleiknum á móti Túnis. Það má sjá samanburð HBStatz á markvörslu Íslands á HM 2017 hér fyrir neðan. Ísland spilar sinn fjórða leik á HM þegar liðið mætir Angóla klukkan 19.45 í kvöld. Það búast allir við að íslensku strákarnir vinni þar sinn fyrsta sigur á heimsmeistaramótinu í Frakklandi.
Íslenski handboltinn Handbolti HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira