Nýir forsvarsmenn Sónar eru lítið að horfa í baksýnisspegilinn Stefán Þór Hjartarson skrifar 13. janúar 2017 10:00 Hópurinn bak við Sónar hátíðina, þau Steinþór Helgi Arnsteinsson, Gyða Lóa Ólafsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Sigga litla Ólafsdóttir, DJ Margeir, Sandra Barilli og Egill Tómasson. Vísir/Anton Brink
Sónar Reykjavík er að taka á sig mynd og tilkynnir í dag nokkra nýja tónlistarmenn sem munu spila í Hörpunni í febrúar. Nýir eigendur eru komnir með hátíðina og bakvið sig hafa þeir teymi af reynsluboltum úr tónlistarsenu landsins. „Það er mikið af nýju fólki og einnig margir sem hafa unnið fyrir hátíðina í gegnum tíðina sem kemur nú inn á nýjum forsendum. Það eru nýir eigendur að hátíðinni – þar inni eru Steinþór Helgi Arnsteinsson, yfirbókari og listrænn stjórnandi, ég er nýr framkvæmdastjóri, Margeir Steinar Ingólfsson sér um markaðsmálin og Ívar Kristjánsson er fjármálastjóri,“ segir Ásgeir Guðmundsson, nýr framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Sónar. „Síðan erum við með Egil Tómasson, Siggu litlu Ólafsdóttur, Söndru Barilli og Gyðu Lóu Ólafsdóttur sem er fjölmiðlafulltrúi hátíðarinnar. Við erum orðin þétt og reynslumikið teymi. Það er ótrúlega gaman að fara inn í þetta verkefni á traustum grunni með ótrúlega margt hæfileikaríkt fólk til að taka þessa hátíð enn þá lengra.“Giggs er gríðarlega stór í Bretlandi og líklega einhver sturlun sem mun fylgja honum hingað til lands.„Það þýðir ekkert að fara í felur með það að þegar nýir eigendur koma inn koma nýir stjórnarhættir og nýir samskiptahættir. Við, sem betur fer, höfum mætt miklum skilningi á öllum vígstöðvum og fólki þykir almennt vænt um þessa hátíð og þykir hún eiga erindi inn í íslenskt menningarlíf. Við erum lítið að horfa í baksýnisspegilinn og höfum bara horft fram á við. Sónar Reykjavík er komin í góðar hendur og verður áfram um ókomna tíð,“ segir Ásgeir.Má fólk búast við einhverjum nýjungum í ár? „Helsta nýjungin í ár er að meira púðri verður eytt í opnu svæðin. Við ætlum að leggja meira í fimmtudaginn svo að hátíðin verði sterk þvert yfir alla dagana og einnig ætlum við að gera Hörpuna þannig að þú labbir ekki inn í Hörpuna þar sem Sónar er, heldur að þú labbir inn á Sónar sem er Hörpunni. Til þess höfum við fengið til liðs við okkur Þorgeir Frímann Óðinsson, sem mun sjá um þessi opnu svæði.“ Í dag tilkynnir hátíðin nýja listamenn sem munu spila í Hörpunni í febrúar. Þetta eru breski grime-rapparinn Giggs, plötusnúðurinn og pródúserinn Blawan og einnig munu gestir hátíðarinnar fá að berja breska rapparann Nadiu Rose augum.Nadia Rose er frænka rapparans og íslandsvinarins Stormzy, það væri gaman að fá fleiri fjölskyldumeðlim þeirra til landsins i í framtíðinni.Giggs er eitt þekktasta nafnið í bresku rappi en Bretarnir hafa verið að koma sterkir til leiks í alþjóðlegu rappsenunni síðustu ár og því góður möguleiki á að Giggs eigi eftir að verða enn stærri á þessu ári. Blawan er breskur plötusnúður og pródúser sem nú er búsettur í plötusnúðahöfuðborg heimsins, Berlín. Þar hefur hann verið að pumpa út brennandi heitu teknói upp á síðkastið. Hin 22 ára Nadia Rose er nýfædd inn í bresku rappsenuna, gaf út sinn fyrsta smell fyrir svona tíu mínútum og er strax búin að spila á tónlistarhátíðum og komin með samning við Sony. Raunar er það sama í gildi með Nadiu og Giggs, við gætum verið að sjá stórstjörnu í fæðingu í Hörpunni. Þegar hafa verið kynntir til leiks tónlistarmenn eins og Fatboy Slim, Moderat, De La Soul, Sleigh Bells, GusGus, FM Belfast, Forest Swords, Sin Fang, Samaris, Tommy Genesis og fleiri. Hátíðin fer fram í Hörpunni 16. til 18. febrúar.
Sónar Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira