Ráðherra Kári Stefánsson skrifar 14. febrúar 2017 07:00 Det var en gammel kone, som vandrede ofte paa Österbro; den gode, gamle kone, hun havde en malkeko. Det var en gammel jæger; hans hjærte var koldt; hans sind var gru. Den grimme, gamle jæger, han stjal den gode ko. Du kender gamle sangen; den klinger södt; den klinger strengt: Den gamle karl og kælling paa Österbro blev hængt. Þetta ljóð orti Þórbergur Þórðarson þegar hann var með 40 stiga hita og með óráði og kallaði Vilmundur Jónsson landlæknir það skemmtilega vitleysu (úr Bréfi til Láru). Á fimmtudaginn var birtist í Fréttablaðinu grein eftir dómsmálaráðherra Íslands undir fyrirsögninni Rannsóknarhagsmunir og viðskiptahagsmunir. Í fyrsta lagi er greinin að nokkru viðbrögð við því að ég bauð fram þjónustu Íslenskrar erfðagreiningar til þess að rýna í lífsýni fyrir lögregluna, henni að kostnaðarlausu. Ég bað ekki um að við fengjum að vinna þessa vinnu né sóttist ég eftir því að okkur yrði falið verkið heldur bauðst til þess að við tækjum þetta að okkur vegna þess að það er hafið yfir allan vafa að við gætum gert þetta vel og fljótt. Ég legg á það áherslu að þvert á móti því sem ráðherra segir í grein sinni þá langar mig ekkert til þess að fá þessar rannsóknir til okkar vegna þess að af þeim hlytist klárlega amstur og líklega nokkur leiðindi, en ég er hins vegar reiðubúinn til þess að sinna þeim ef það þjónar hagsmunum samfélagsins og það þiggur boðið. Í annan stað eru skrif ráðherrans viðbrögð við greiningu minni sem birtist í Fréttablaðinu á þriðjudaginn á röksemdum ráðherrans fyrir því að hafna boði Íslenskrar erfðagreiningar til þess sjá um greiningu lífsýna. Röksemdir hennar voru kostnaður og einhver óskilgreind vandamál sem hún áleit að hlytust af því að vinna þessa vinnu hér heima. Ég hef eftirfarandi athugasemdir við þrjú atriði úr grein ráðherrans: 1. Dómsmálaráðherrann segir að hún vilji að rannsóknarhagsmunir verði ávallt í fyrsta sæti hjá henni þegar kemur að málum eins og þessum og viðskiptahagsmunir muni ávallt látnir víkja. Þessu ber að fagna. Við skulum nú skoða hvernig aðkoma Íslenskrar erfðagreiningar hefði samrýmst þeim markmiðum ráðherrans að hlúa að rannsóknarhagsmunum og forðast viðskiptahagsmuni: Sá þáttur í rannsóknum lífsýna í sakamálum sem við buðumst til þess að vinna fyrir lögregluna felst í því að einangra DNA úr lífsýnum af vettvangi glæpa og arfgerðargreina og raðgreina og bera síðan saman raðir níturbasa í DNA úr tveimur eða fleiri lífsýnum og setja raðirnar síðan í víðara samhengi. Í þessu felst galdurinn við notkun lífsýna við rannsóknir glæpa. Íslensk erfðagreining hefur leitt heiminn í um tuttugu ár í þeirri mannerfðafræði sem felst í því að einangra DNA og arfgerðargreina það og raðgreina og bera saman raðir níturbasa úr hópum manna og setja síðan raðirnar í víðara samhengi. Öll gögn sem unnið er með hjá Íslenskri erfðagreiningu eru undir kennitölum sem hafa verið dulkóðaðar samkvæmt ferli sem er stjórnað af óháðum aðila og Persónuvernd hefur lagt blessun sína yfir. Þar af leiðandi er hjá okkur aðferð og reynsla sem ætti að gera það að verkum að sú staðreynd að allir þekkja alla á Íslandi ætti ekki að flækjast fyrir. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar er þekktir fyrir öguð og nákvæm vinnubrögð og hugmyndaríkar lausnir á þeim vandamálum sem mæta þeim sem rýna í sameind sem er ábyrg fyrir öllu lífi á jörðu og við köllum DNA. Vísindamenn frá Svíþjóð, Noregi og Danmörku leita gjarnan í smiðju Íslenskrar erfðagreiningar þegar þeir þurfa á hjálp að halda við rannsóknir af þessu tagi, einfaldlega vegna þess að það er enginn annar aðili á Norðurlöndum sem býr að álíka reynslu, þekkingu og getu. Það er því lítill vafi að það væri betur hlúð að rannsóknarhagsmunum sem ráðherra eru kærir hjá Íslenskri erfðagreiningu en einhvers staðar á sænskri Melrakkasléttu. Síðan eru það viðskiptahagsmunir sem ráðherra gefur í skyn að hann vilji ætíð láta víkja fyrir rannsóknarhagsmunum sem er að mínu mati eðlilegt og rétt hvort sem viðskiptahagsmunirnir væru mínir eða annarra. Það er staðreynd að fyrirtækið sænska sem lögreglan kaupir núna þjónustuna frá hefur viðskiptahagsmuna að gæta í því hversu nákvæmlega það vinnur vinnuna, hvernig það verðleggur hana og skilar henni af sér. Það er líka staðreynd að Íslensk erfðagreining hefði enga viðskiptahagsmuni af því að vinna þessa vinnu ókeypis fyrir lögregluna. Vinnan væri gjöf fyrirtækisins til þjóðarinnar eins og sú raðgreining sem við höfum verið að gera Landspítalanum að kostnaðarlausu til þess að hjálpa við að greina fágæta sjúkdóma, aðallega hjá ungum börnum og jáeindaskanninn sem verið er að taka í notkun. Það er því ljóst að ein aðferð til þess að forðast viðskiptahagsmunina væri að þiggja boð Íslenskrar erfðagreiningar. 2. Þegar ráðherrann tjáir áhyggjur sínar af því að Íslensk erfðagreining geti sagt með nokkurri vissu úr hvaða einstaklingi lífsýni sé án þess að þurfa samanburð eða frekari vitnanna við gætir misskilnings sem mér finnst ekki ólíklegt að ég beri töluverða ábyrgð á með óvarkárri notkun á persónufornafni í fyrstu persónu fleirtölu. Þessi möguleiki býr í þeim gögnum sem eru til staðar hjá Íslenskri erfðagreiningu og víða annars staðar í vísindasamfélaginu en hann er ekki hægt að nýta nema með vilja fólksins í landinu, aðkomu Persónuverndar og leyfi Vísindasiðanefndar. Það sem meira er þá væri það alltaf grafalvarlegt mál að nýta upplýsingar sem var aflað með upplýstu samþykki þátttakenda til þess að vinna rannsóknir í allt öðrum tilgangi. Ráðherrann og ég erum sammála um það. Sá möguleiki er jafnvel fyrir hendi að það þyrfti að setja sérstök lög til þess að heimila þetta. Það ber þó að hafa í huga að eini einstaklingurinn sem yrðu borin kennsl á með þessum hætti er sá sem ætti lífsýnið á vettvangi. Það er því af og frá að ætla að þetta hefði neikvæð áhrif á réttindi þátttakendanna í vísindarannsóknum okkar eða ættmenna þeirra í framtíðinni nema ef vera skyldi réttindin til þess að fremja glæp án þess að það kæmist upp. Ég er nokkuð viss um að ráðherrann er sammála mér um að sá réttur sé hvort sem er illa tryggður að íslenskum lögum. 3. Ráðherrann klykkir svo út með því að berja sér á brjóst yfir því að hún hafi lagt fram frumvarp til laga á síðasta kjörtímabili um brottfall laga sem veita fjármálaráðherra heimild til þess að veita deCODE genetics inc ríkisábyrgð. Hvers vegna skyldi hún blanda þessu saman við skrif um úrvinnslu lífsýna, spyr kannski lesandinn? Vegna þess að deCODE genetics inc var móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar og hún er að gefa það í skyn að ríkið hafi nú þegar veitt slíkt fé eða fjárgildi til félagsins að ekkert sem það kynni að gera í framtíðinni sé eðlilegt að líta á sem ókeypis. Í fyrsta lagi var það fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins sem lagði fram frumvarpið og Alþingi sem samþykkti það, ekki Íslensk erfðagreining eða deCODE genetics inc. Í annan stað var ríkisábyrgðin aldrei veitt. Sú staðreynd að lögin voru sett en heimildin aldrei nýtt olli alls konar vandræðum fyrir Íslenska erfðagreiningu og að endingu töluverðu fjártjóni. Það má því leiða að því rök að ef boði okkar um vinnslu lífsýna án endurgjalds sé stillt upp við hliðina á lögunum um ríkisábyrgð væri það enn meira ókeypis en ella. Það er hins vegar ekki laust við að frumvarpið sem Sigríður Á. Andersen lagði fram á síðasta kjörtímabili um brottfall ríkisábyrgðarlaganna sé athyglisvert og nálgist að vera það sem Vilmundur Jónsson kallaði skemmtilega vitleysu. Það hefði í það minnsta verið skiljanlegra ef hún hefði skrifað það með 40 stiga hita og með óráði. Það vill nefnilega svo til að þegar hún lagði fram frumvarpið voru lögin um ríkisábyrgðina þegar fallin ómerk vegna þess að heimildin í þeim takmarkaðist við deCODE genetics inc sem var ekki lengur til. Þetta frumvarp er nokkurs konar ígildi handtökuheimildar á látinn mann. Ríkisábyrgðina hefði einungis verið hægt að veita í gegnum miðil.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Kári Stefánsson Tengdar fréttir Rannsóknarhagsmunir og viðskiptahagsmunir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sendi mér kveðju hér í blaðinu í fyrradag. Tilefnið er að ég hafði í stuttu máli lýst athugun sem fram fór á vegum innanríkisráðuneytisins, ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2012 - 2013 á fyrirkomulagi lífsýnarannsókna í sakamálum. 9. febrúar 2017 07:00 Ráðherrabull Það birtist svolítið viðtal við nýja dómsmálaráðherrann okkar hana Sigríði Á. Andersen í Fréttatímanum á fimmtudaginn. Tilefnið var að öllum líkindum að ég hafði boðið fram þjónustu Íslenskrar erfðagreiningar til þess að reyna að hysja gagnlegar upplýsingar upp úr lífsýnum sem fundust á vettvangi glæpsins hræðilega sem hefur hvílt svo þungt á þjóðinni. 7. febrúar 2017 07:00 Mest lesið Mamma fékk fjórar milljónir fyrir að eignast þig í apríl Guðfinna Kristín Björnsdóttir Skoðun Tímaskekkja í velferðarríki Stefán Þorri Helgason Skoðun Þegar Steve Jobs græddi milljarða á Toy Story Björn Berg Gunnarsson Fastir pennar Þegar Inga Sæland sendir reikninginn á næsta borð Einar Þorsteinsson Skoðun Þreytta þjóðarsjálfið Starri Reynisson Skoðun Umferðarslys eða umhverfisslys Baldur Sigurðsson Skoðun Síðan hvenær var bannað að hafa gaman? Hópur stjórnarmanna í Uppreisn Skoðun Milljarðarnir óteljandi og bókun 35 Haraldur Ólafsson Skoðun Vextir eins og í útlöndum? Björn Berg Gunnarsson Skoðun Kynjuð vísindi, leikskólaráð á villigötum, klámsýki, svipmyndir frá Norður-Kóreu Fastir pennar Skoðun Skoðun Frá friði til vígvæðingar: Höfnum nýrri varnar- og öryggisstefnu utanríkisráðherra Steinunn Þóra Árnadóttir,Einar Ólafsson skrifar Skoðun Þungaflutningar og vegakerfið okkar Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Stærsta öryggismál barna í dag eru samskipti, mörk og viðbrögð við grun um ofbeldi Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stöðvum ólöglegan flutning barna Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar Inga Sæland sendir reikninginn á næsta borð Einar Þorsteinsson skrifar Skoðun Erlendar rætur: Hornsteinn framfara, ekki ógn Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Virðingarleysið meiðir Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Kjarninn og hismið Magnús Magnússon skrifar Skoðun „Hættu að kenna innflytjendum um að tala ekki íslensku. Við erum ekki vandamálið“ Ian McDonald skrifar Skoðun Brjálæðingar taka völdin Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Ég og Dagur barnsins HRÓPUM á úrlausnir … Hvað með þig? Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi Guðbjörg S. Bergsdóttir,Rannveig Þórisdóttir skrifar Skoðun Ætti Sundabraut að koma við í Viðey? Ólafur William Hand skrifar Skoðun Ekki klikka! Því það er enginn eins og Julian Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Þess vegna er vond hugmynd hjá Reykjavíkurborg að tekjutengja leikskólagjöld Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Mamma fékk fjórar milljónir fyrir að eignast þig í apríl Guðfinna Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun 34 milljónir fyrir póstnúmerið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Spyrnum við fótum – eflum innlenda fjölmiðla, líka RÚV Kristján Ra. Kristjánsson skrifar Skoðun Staðreyndir um fasteignagjöld í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir,Sverrir Bergmann Magnússon,Sigurrós Antonsdóttir,Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir,Bjarni Páll Tryggvason,Díana Hilmarsdóttir,Helga María Finnbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar rykið sest: Verndartollar ESB og áhrifin á EES Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Stormur í vatnsglasi eða kaldhæðni örlaganna? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Síðan hvenær var bannað að hafa gaman? Hópur stjórnarmanna í Uppreisn skrifar Skoðun Ísland slítur sig frá þriggja áratuga norrænu menntasamstarfi Hópur fyrrverandi UWC-nema skrifar Skoðun Frá skjá til skaða - ráð til foreldra um stafrænt ofbeldi Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Barnaskattur Vilhjálms Árnasonar Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hertar og skýrari reglur í hælisleitendamálum Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skelin Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Ójöfn atkvæði eða heimastjórn! Sigurður Hjartarson skrifar Skoðun Sirkus Daða Smart Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Bændur fá ekki orðið Jóhanna María Sigmundsdóttir skrifar Sjá meira
Rannsóknarhagsmunir og viðskiptahagsmunir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sendi mér kveðju hér í blaðinu í fyrradag. Tilefnið er að ég hafði í stuttu máli lýst athugun sem fram fór á vegum innanríkisráðuneytisins, ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2012 - 2013 á fyrirkomulagi lífsýnarannsókna í sakamálum. 9. febrúar 2017 07:00
Ráðherrabull Það birtist svolítið viðtal við nýja dómsmálaráðherrann okkar hana Sigríði Á. Andersen í Fréttatímanum á fimmtudaginn. Tilefnið var að öllum líkindum að ég hafði boðið fram þjónustu Íslenskrar erfðagreiningar til þess að reyna að hysja gagnlegar upplýsingar upp úr lífsýnum sem fundust á vettvangi glæpsins hræðilega sem hefur hvílt svo þungt á þjóðinni. 7. febrúar 2017 07:00
Skoðun Frá friði til vígvæðingar: Höfnum nýrri varnar- og öryggisstefnu utanríkisráðherra Steinunn Þóra Árnadóttir,Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Stærsta öryggismál barna í dag eru samskipti, mörk og viðbrögð við grun um ofbeldi Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun „Hættu að kenna innflytjendum um að tala ekki íslensku. Við erum ekki vandamálið“ Ian McDonald skrifar
Skoðun Þess vegna er vond hugmynd hjá Reykjavíkurborg að tekjutengja leikskólagjöld Halla Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Mamma fékk fjórar milljónir fyrir að eignast þig í apríl Guðfinna Kristín Björnsdóttir skrifar
Skoðun Staðreyndir um fasteignagjöld í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir,Sverrir Bergmann Magnússon,Sigurrós Antonsdóttir,Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir,Bjarni Páll Tryggvason,Díana Hilmarsdóttir,Helga María Finnbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Ísland slítur sig frá þriggja áratuga norrænu menntasamstarfi Hópur fyrrverandi UWC-nema skrifar