Páfinn: Skárra að vera trúleysingi en kaþólskur hræsnari Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2017 23:30 Frans páfi var harðorður í garð kaþólskra hræsnara. Vísir/EPA
Frans páfi var gagnrýninn á þá sem lifa lífi blekkinga í messu í Sixtínsku kapellunni sem fram fór í dag. Þar sagði hann að það væri skárra að vera trúleysingi heldur einn þeirra „fjölmörgu“ kaþólikka sem hann segir að lifi tvöföldu lífi. Reuters greinir frá. Í ræðu sinni sagði páfinn að sér þætti slíkir kaþólikkar vera hræsnarar og var augljóst að páfinn hafði sterkar skoðanir á trúfélögum sínum. „Það er hneyksli að segja eitt og gera annað. Það er tvöfalt líf.“ „Sumir segja um sjálfa sig: „Ég er rosalega kaþólskur, ég fer alltaf í messu, ég tilheyri þessum söfnuði og þessari hreyfingu“ og svo framvegis.“ Hann sagði að mikið af fólki sem talar með þessum hætti, ætti í raun að bæta í og segja allan sannleikann um það hver þau raunverulega eru. „Líf mitt er í alvöru ekki kristið, vegna þess að ég borga starfsmönnum mínum ekki mannsæmandi laun, ég misnota mér fólk, ég misnota mér aðstöðu mína, ég stunda óheiðarleg viðskipti, ég stunda peningaþvott og ég lifi í raun tvöföldu lífi.“ „Það eru margir kaþólikkar sem eru svona og þeir eru hneyksli. Hversu oft höfum við ekki heyrt sagt um þetta fólk: „Ef þessi manneskja er kaþólikki, þá held ég að það sé betra að vera trúleysingi.“ Páfinn hefur þótt einkar frjálslyndur, allt frá því að hann tók við embætti árið 2013 og hefur hann verið ötull talsmaður þess að fólk lifi á þann veg sem trúin boðar.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Sjá meira