Minnir á að skipverjinn er saklaus þar til sekt er sönnuð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. mars 2017 13:00 Skipverjinn er í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði. Hann var fluttur þaðan af Litla-Hrauni í gær þar sem hann hafði verið í einangrun í tæpar sex vikur. vísir/eyþór
Verjandi skipverjans á grænlenska togaranum Polar Nanoq sem sakaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur segir einangrun skipverjans hafa varað of lengi. Þeir rannsóknarhagsmunir sem lögreglan hafi vísað til við kröfu sína um einangrun hafi ekki verið fyrir hendi. Skipverjinn, sem hefur verið í einangrun í tæpar sex vikur á grundvelli rannsóknarhagsmuna, var leystur úr einangrun í gær og fluttur af Litla-Hrauni í fangelsið á Hólmsheiði. Til stendur að á Hólmsheiði verði þeir vistaðir sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald. Verjandinn, Páll Rúnar M. Kristjánsson, segir í samtali við Vísi að það hafi ekki komið sér á óvart að skipverjinn var leystur úr einangrun í gær. Skipverjinn hefur í þrígang verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir honum á morgun.vísir/gvaEinangrunarvist skaðleg „Það kemur ekki á óvart. Það voru einfaldlega ekki til staðar þeir rannsóknarhagsmunir sem kröfðust þess að hann sætti einangrun. Einangrun hans hefur því varað lengur en nokkur nauðsyn bar til.“ Verjandinn ræddi einangrunarvist í Vikulokunum á Rás 1 í síðustu viku. Þar kom hann inn á þá skoðun sína að alltof mikið væri um notkun einangrunarvistar. Leggja yrði þá kröfu á herðar rannsakenda að sýna fram á að skilyrði fyrir einangrunarvist væru uppfyllt og það yrði að gera með áþreifanlegum hætti. „Það er mjög sjaldgæft að kröfu um einangrun sé hafnað af dómstólum. Til þess að hægt sé að samþykkja einangrun einstaklings þá þurfa að vera til staðar mjög ströng skilyrði, dómstólar verða að gera þá kröfu að rannsakendur sýni efnislega fram á nauðsyn slíkrar ráðstöfunar með vísan til áþreifanlegra gagna og raunhæfra ástæðna,“ segir Páll. „Það verður að hafa það í huga að svona einangrunarvist er sérstaklega þungbær og skaðleg einstaklingum sem ekki hafa verið dæmdir.”Pál Rúnar M. Kristjánsson hæstaréttarlögmaður.Neitar staðfastlega sök í málinu Skipverjinn, hefur að sögn Páls Rúnars, neitað sök í málinu frá upphafi. Rétt sé að hafa í huga að samkvæmt lögum skuli menn taldir saklausir uns sekt þeirra er sönnuð. „Í íslenskum rétti gildir að maður er saklaus uns sekt er sönnuð. Þó reglan kunni að njóta takmarkaðra vinsælda meðal almennings þegar að mikið gengur á þá gildir hún engu að síður í rétti allra þróaðra lýðræðis- og réttarríkja. Þessi regla kemur t.d. fram í 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar en einnig er hana að finna í öllum helstu mannréttindasáttmálum sem Ísland á aðild að. Og ekki að ástæðulausu,“ segir Páll Rúnar. „Þessi regla þjónar mikilvægu hlutverki sem sýnir sig helst á viðsjárverðum tímum. Henni er m.a. ætlað að varna því að mannréttindi sakborninga séu borin ofurliði þegar þrýstingur er á að ná fram tiltekinni niðurstöðu í sakamáli. Það er því mikilvægt að virða þann rétt í hvívetna, sérstaklega þegar mikið er í húfi. Sakborningurinn í þessu máli hefur staðfastlega neitað sök. Það er hans réttur og af þeim rétti leiðir að líta ber á hann sem saklausan þar til annað er sannað. Það er hlutverk dómstóla er að dæma þar um.”Grímur Grímsson á von á því að rannsókn málsins ljúka á næstu tveimur til þremur vikum.Vísir/Anton BrinkMótmæla kröfu um gæsluvarðhald Gæsluvarðhald yfir skipverjanum rennur út á morgun. Einar Guðberg Jónsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagði við RÚV í gær að farið yrði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir skipverjanum sem hefur nú varað í sex vikur eða frá því hann var handtekinn þann 18. janúar. „Ég geri fastlega ráð fyrir að þeirri kröfu verði mótmælt. Einstaklingur sem heldur fram sakleysi sínu telur líklega aldrei ástæðu til að svipta sig frelsi.” Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem fer fyrir rannsókn málsins, hefur sagst reikna með því að rannsókn málsins ljúki á næstu tveimur til þremur vikum.Síðast sást til Birnu Brjánsdóttur á eftirlitsmyndavélum í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardagsins 14. janúar. Lík hennar fannst í fjörunni við Selvogsvita rúmri viku síðar. Lögregla telur skipverjann hafa tekið Birnu upp í bílaleigubíl í miðbæ Reykjavíkur umrædda nótt og ráðið henni bana þá um morguninn.Ítarlega umfjöllun um málið má lesa hér.
Birna Brjánsdóttir Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Sjá meira