Ábendingum um gölluð snuð hefur fjölgað Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 18. apríl 2017 16:31 Stofnunin ætlar að leggja áherslu á að skoða snuð og snuddubönd frekar. Hún bendir forráðamönnum jafnframt á að vera á varðbergi.
Ábendingum um gölluð snuð og snuddubönd hefur fjölgað að undanförnu, að sögn Neytendastofu. Ekki er vitað hvort framleiðslan hafi breyst eða hvort neytendur séu duglegri við að senda inn ábendingar en stofnunin hyggst leggja áherslu á að skoða þessar vörur frekar. Flestar tilkynningar snúa að því að litlir hlutir brotni eða detti af böndunum, að því er segir á vef Neytendastofu. „Á síðustu 10 árum hafa 78 tilkynningar borist í RAPEX – tilkynningakerfið varðandi snuð eða snuddubönd sem geta verið hættuleg börnum. Flestar tilkynningar um snuð voru vegna köfnunarhættu vegna smárra hluta sem losna eða að loftgöt hefur vantað. Snudduböndin sem nú eru framleidd eru styttri en áður svo ekki á lengur að vera kyrkingarhætta af þeim en aftur á móti eru að koma tilkynningar um að litlir hlutir brotni eða detti af böndunum.“ Stofnunin beinir því til forráðamanna að skoða hlutina sjálfir, til dæmis með því að toga í túttuna og snuðið til að athuga hvort hún sé heil. Þá megi snuddubönd ekki vera lengri en 22 sentímetrar því að öðrum kosti sé hætta á að bandið geti vafist um hálsinn á börnum. Jafnframt fylgist þeir vel með hvort smáir hlutir geti losnað af böndunum.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira