Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Smári Jökull Jónsson skrifar 21. september 2026 06:33 Fulltrúi ICE á vettvangi skotárásarinnar í nótt. Vísir/Getty Mótmælendur söfnuðust saman í Austin í Texas í gær eftir að fulltrúi innflytjenda- og tollagæslunnar ICE skaut mann á götu úti. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og borgaryfirvöld krefjast nú svara frá alríkisyfirvöldum.
Maðurinn sem skotinn var, Wilber Rafael Garces Perez, kemur frá Venesúela en skotárásin átti sér stað rétt eftir hádegi að staðartíma. Borgaryfirvöld hafa ekki staðfest hvort maðurinn hafi verið skotmark aðgerða ICE en Kate Lincoln-Goldfinch sagði í samtali við fjölmiðla að Garces Perez væri í haldi ICE. Í frétt BBC kemur fram að tugir mótmælenda söfnuðust saman á vettvangi, veifandi fánum Mexíkó og Gvatemala og með skilti þar sem þess var krafist að ICE hyrfi úr borginni. Mótmælendur voru fljótir á vettvang skotárásarinnar.Vísir/Getty Lögreglan í Austin staðfesti við CBS að maðurinn hefði slasast og verið fluttur á sjúkrahús. Enginn lögreglumaður borgarinnar átti þátt í aðgerðunum. Krefst óháðrar rannsóknar Borgarstjórinn og demókratinn Kim Watson sagði á blaðamannafundi að borgarbúar ættu rétt á að vita hvað hefði gerst og að „finna til öryggis í borginni sinni.“ Þá sagði hann jafnframt að aðgerðum ICE hefði fjölgað verulega í borginni undanfarnar vikur og kvaðst ánægður að borgin fengi að hafa aðkomu að rannsókn málsins. Greg Casar, þingmaður demókrata í Texas, hefur krafist tafarlausar og óháðrar rannsóknar sem og að myndefni úr búkmyndavélum lögreglumanna verði birt. Skotárásin í nótt átti sér stað nokkrum mánuðuum eftir að Lorenzo Salgado Araujo, íbúi í Houston, lést eftir að fulltrúi ICE skaut hann. Samkvæmt heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna var hann ekki skotmark rannsóknar ICE heldur skotinn eftir að bíll hans hafði verið stöðvaður af fulltrúum ICE. „Hann skilur þetta betur en nokkur annar“ Þá ákærði bandaríska dómsmálaráðuneytið fulltrúa ICE fyrr í mánuðinum fyrir að ljúga um skotárás á venesúelskan innflytjanda í Minnesota en stjórn Donald Trump hefur hert mjög á aðgerðum gegn ólöglegum innflytjendum og hefur það leitt til ólgu í fjölmögum borgum. Stórnvöld hafa varið aðgerðirnar og sagt þær nauðsynlegar vegna almannaöryggis og til að framfylgja loforðum um fjöldabrottvísanir. Mannréttindasamtök segja aðgerðir ICE hins vegar að brjóta gegn tjáningarfrelsi og lögum, og demókratar krefjast umbóta, meðal annars að fulltrúar beri búkmyndavélar og að þeim verði bannað að hylja andlit sín í aðgerðum. Alríkisfulltrúi gengur framhjá bíl þar sem sjá má göt eftir byssukúlur á rúðunni.Vísir/Getty Maria Elvira Salazar, þingkona repúblikana í Flórída sem hefur gagnrýnt aðgerðirnar, birti í vikunni auglýsingu þar sem hún gagnrýnir að fólk án sakaferils sé handtekið. Í viðtali við Face the Nation á CBS sagðist hún hafa rætt við forsetann og taldi hann myndu halda landinu á réttri braut. „Hann skilur þetta betur en nokkur annar,“ sagði hún.
Bandaríkin Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira