„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. október 2026 15:19 Christa Pike var flutt á sjúkrahús eftir að aftaka hennar mistókst. AP/Fangelsismálayfirvöld í Tennessee og George Walker Fanginn Christa Pike hefur loks tjáð sig opinberlega eftir að aftaka hennar mistókst í september. Það hefur ekki liðið það augnablik frá atvikinu þar sem hún hefur ekki upplifað sársauka. Hún segist hafa vaknað ringluð og í sársauka.
Eins og greint hefur verið frá misheppnaðist aftaka Pike í Tennesse-ríki í september. Hún var flutt á sjúkrahús í flýti og raknaði úr rotinu í byrjun október. Þegar reynt var að taka hana af lífi með pentóbarbítal í æð tókst það ekki. Hún hafði verið sprautuð með tveimur skömmtum af lyfinu sem á að vera banvænt og dró það hana ekki til dauða. Pike er fimmtug en hún var árið 1996 dæmd til dauða fyrir aðkomu hennar að morði á skólafélaga hennar. Pike var þá um átján ára þegar hún ásamt kærasta sínum pyntaði og drap Colleen Slemmer, sem þá var nítján ára. Pike var illa leikin eftir aftökuna misheppnuðu en hefur verið útskrifuð af spítala og færð aftur í fangelsi. Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá því að lögmenn Pike hafi birt skriflega yfirlýsingu hennar í dag. „Það hefur ekki verið sú stund frá þessu kvöldi sem ég hef ekki upplifað sársauka. Ég finn til í líkamanum, í handleggjunum, í höndunum og í hálsinum. Ég á enn erfitt með að tala. Sársaukinn er ekki aðeins líkamlegur. Það er einnig sársauki í huga mínum og sál.“ Lögmenn Pike hafa áður sagt hana hafa þjáðst af lungnabólgu og bólgu í handleggjum í kjölfar aftökunnar. Þá var hún ófær um að kyngja til lengri tíma. „Ég er að jafna mig og ég veit að ég er að verða sterkari. Bati er þó ekki það sama og að vera í lagi. Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt. Ég er verulega ósátt við það vanhæfi sem hefur sett of marga í þessa hræðilegu stöðu.“ Fangelsismálayfirvöld í Tennesse neituðu að veita viðbrögð þegar BBC leitaðist eftir því.
Bandaríkin Dauðarefsingar Erlend sakamál Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira