Erlent

Tekur við Bolsonaro opnum örmum

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Donald Trump BAndaríkjaforseti hefur dregið úrslit fosertakosninganna í Brasilíu í efa.
Donald Trump BAndaríkjaforseti hefur dregið úrslit fosertakosninganna í Brasilíu í efa. AP

Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flávio Bolsonaro er sagður hafa flúið land til Bandaríkjanna í kjölfar þess að neita að viðurkenna ósigur sinn í forsetakosningum. Bandaríkjaforseti ætlar að veita Bolsonoro og fjölskyldu hans vegabréfsáritanir er brasilísk stjórnvöld hafa fellt vegabréf hans úr gildi, segir í umfjöllun bandarískra miðla.

Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur sitjandi forseta, hins vinstrisinnaða Lula. Voru úrslitin heldur óvænt en Bolsonaro hlaut fleiri atkvæði en Lula í fyrri umferð kosninganna þann 4. október en ekki hreinan meirihluta.

Í gær skipaði hæstiréttur Brasilíu Bolsonaro að skila inn vegabréfi sínu til lögreglu á innan við sólarhring í tengslum við rannsókn á meintu peningaþvætti. Hann neitar sök og skilaði ekki inn vegabréfinu. Það hefur nú verið fellt úr gildi af brasilískum stjórnvöldum. 

Öldungardeildarþingmaðurinn brasilískiFlávio Bolsonaro ásamt eiginkonu sinni Fernanda Bolsonaro. AP

CNN hefur eftir heimildarmönnum að Bolsonaro sé nú kominn til Bandaríkjanna. Grunur leikur á að hann hafi ferðast til Argentínu en argentínsk yfirvöld segja að engin merki séu um að Bolsonaro hafi ferðast um argentísk landamæri, segir í umfjöllun BBC. Bróðir hans býr í Texasríki í Bandaríkjunum.

Sjá einnig: Á­fall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur samþykkt að hleypa brasilíska öldungadeildarþingmanninum til Bandaríkjanna og veita honum og fjölskyldunni vegabréfsáritanir, sagði ráðgjafi Trumps í samtali við CNN.

Bolsonaro-fjölskyldan á í nánu sambandi við stjórn Bandaríkjaforseta. Trump dró úrslit forsetakosninganna í Brasilíu í efa og sagði þær líta út fyrir að hafa verið sviknar.

Sjá einnig: Bar­áttan um Brasilíu


Tengdar fréttir

Leikur á hnífsegg í Brasilíu

Brasilíumenn ganga í dag að kjörborðinu í seinni umferð forsetakosninga þar sem sitjandi forsetinn Luiz Inácio Lula da Silva etur kappi við Flávio Bolsonaro, öldungadeildarþingmann og elsta son fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×