Leikur á hnífsegg í Brasilíu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. október 2026 19:28 Ómögulegt er að segja til um hvernig fer. Vísir/Samsett Brasilíumenn ganga í dag að kjörborðinu í seinni umferð forsetakosninga þar sem sitjandi forsetinn Luiz Inácio Lula da Silva etur kappi við Flávio Bolsonaro, öldungadeildarþingmann og elsta son fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro.
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að faðir Flávio og fyrrverandi forseti Jair Bolsonaro situr í fangelsi fyrir tilraunir til að halda völdum eftir ósigur sinn í forsetakosningunum 2022. Um 158,8 milljónir Brasilíumanna eru á kjörskrá. Kjörstöðum verður lokað klukkan 17 að brasilískum tíma, eða núna klukkan átta að íslenskum, og talning hefst þegar í stað samkvæmt umfjöllun Reuters. Flávio Bolsonaro hafði betur í fyrri umferð kosninganna 4. október síðastliðinn með 56,1 milljón atkvæða, eða 47,03 prósent gildra atkvæða. Lula fékk 53,9 milljónir, eða 45,16 prósent. Munurinn var því ekki nema rúmar 2,2 milljónir atkvæða sem þykir naumt í risavöxnu og fjölmennu landi eins og Brasilíu. Þetta var minnsti munur á tveimur efstu frambjóðendum í fyrri umferð forsetakosninga í Brasilíu frá því að herforingjastjórnin lét upp laupana og lýðræði var aftur komið á í landinu. Flávio Bolsonaro er 45 ára og hefur setið í öldungadeildinni sem fulltrúi Rio de Janeiro. Þetta er í fyrsta sinn sem hann sækist eftir forsetaembættinu. Lula er áttræður og sækist eftir fjórða kjörtímabili sínu sem forseti. Hann var forseti frá 2003 til 2010 og sneri aftur í embættið árið 2023 eftir að hafa sigrað Jair Bolsonaro í afar jöfnum kosningum árið áður. Jair Bolsonaro sjálfur er ekki á kjörseðlinum enda afplánar hann 27 ára fangelsisdóm eftir að hæstiréttur Brasilíu sakfelldi hann árið 2025 fyrir samsæri um valdarán eftir ósigur hans gegn Lula árið 2022. Flávio hefur gert mál föður síns að digrum hluta kosningabaráttu sinnar og hefur heitið því að beita sér fyrir því að hann verði náðaður eða fái sakaruppgjöf verði hann forseti
Brasilía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira