Grunaður höfuðpaur í stóru fíkniefnamáli tekinn í Keflavík sex árum síðar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. apríl 2017 00:09 Um var að ræða 30 þúsund e-töflur sem smyglað var hingað til lands sumarið 2011.
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að Einar Sigurður Einarsson, grunaður höfuðpaur í umfangsmiklu fíkniefnamáli, skuli sæta farbanni á meðan mál hans er til meðferðar fyrir héraðsdómi en þó ekki lengur en til 8. maí næstkomandi. Hann var handtekinn á mánudaginn í Leifsstöð. Einar er einn af þremur mönnum sem voru ákærðir í janúar 2014 fyrir að hafa staðið að innflutningi á um 30 þúsund e-töflum hingað til lands í ágúst 2011. Samkvæmt ákæru á Einar Sigurður að hafa afhent Einari Erni Adolfssyni, sem einnig var ákærður vegna málsins, fíkniefnin í Amsterdam í Hollandi. Þá á hann einnig að hafa greitt hluta ferðakostnaðar og uppihald Einars Arnar sem flutti efnin svo frá Danmörku til Íslands en Einar Örn var á þessum tíma 17 ára gamall.Var í farbanni í Ástralíu Skipta þurfti málinu upp og gefa út tvær ákærur því Einar Sigurður var í farbanni í Ástralíu en þar var hann búsettur. Upphaflega var ein ákæra gefin út í júní 2013 á hendur þremenningunum, þeim Einari Sigurði, Einari Erni og Finni Snæ Guðjónssyni. Í þinghaldi í september sama ár kom fram að Einar væri í farbanni í Ástralíu og vegna þess var málinu skipt upp í janúar 2014. Einar Sigurður sætti farbanni í Ástralíu allt til 4. september 2015 en ekki hafa fengist upplýsingar um það hvers vegna hann var í farbanni. Í aðdraganda fyrirtöku málsins í janúar 2016 var Einari birt ákæran og fyrirkall að nýju þar sem hann var búsettur í Ástralíu, en fyrir liggur að hún var áður birt honum í aðdraganda þingfestingar málsins í mars 2014, þá einnig í Ástralíu.Kom til Íslands í byrjun ársins Einar kom til Íslands í byrjun þessa árs og mun nú vera búsettur hér á landi. Hann var handtekinn á mánudaginn í Leifsstöð en hann átti bókað flug frá Keflavíkurflugvelli síðastliðinn laugardag. Hann mætti hins vegar ekki í flugið þá en var tveimur dögum síðar kominn á flugvöllinn þar sem hann var handtekinn. Ákæruvaldið krafðist þess að hann yrði dæmdur í farbann þar sem ekki væri að sjá af gögnum málsins að Einar Sigurður hefði gert nokkurn reka að því að koma fyrir dóm og svara til saka þó svo að hann hefði í tvígang verið kallaður til þess. „Í ljósi alls þessa og hinna alvarlegu sakargifta sem varnaraðili er borinn í sakamálinu, en í ákæru er honum gefið að sök brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn ákvæðinu varðar allt að 12 ára fangelsi, þykir mega ætla að varnaraðili muni reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér undan málssókn með öðrum hætti fari hann frjáls ferða sinna,“ segir í úrskurði héraðsdóms um farbannið sem Hæstiréttur staðfesti eins og áður sagði. Þeim hluta málsins sem sneri að þeim Einari Erni og Finni Snæ lauk í febrúar í fyrra þegar þeir hlutu hvor um sig fjögurra ára skilorðsbundinn dóm til þriggja ára fyrir sína aðild að smyglinu. Áður höfðu þeir hlotið fangelsisdóma til sex ára en Hæstiréttur ómerkti þá vegna vanhæfis Ástríðar Grímsdóttur, héraðsdómarar, sem hafði áður komið að málinu þegar hún úrskurðaði annan manninn í gæsluvarðhald.
Tengdar fréttir Segist hafa ætlað að smygla kílói af kókaíni Nítján ára piltur sem flutti til landsins þrjátíu þúsund e-töflur segist hafa verið grunlaus um að ekki væri kókaín í farangrinum hans. 12. júní 2013 07:00 Breytt líferni og dráttur á málinu ástæða skilorðsins Refsing Einars Arnar Adolfssonar, fyrir fíkniefnasmygl, breyttist talsvert á tveimur árum. 24. febrúar 2016 19:24 „Ég er eins sáttur og það gerist miðað við aðstæður“ Einar Örn Adolfsson fékk skilorðsbundinn dóm fyrir fíkniefnasmygl í dag. Var áður dæmdur í sex ára fangelsi. Er á leið vestur um haf með ársgamla dóttur sem glímir við lungnasjúkdóm. 24. febrúar 2016 14:50 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira
Segist hafa ætlað að smygla kílói af kókaíni Nítján ára piltur sem flutti til landsins þrjátíu þúsund e-töflur segist hafa verið grunlaus um að ekki væri kókaín í farangrinum hans. 12. júní 2013 07:00
Breytt líferni og dráttur á málinu ástæða skilorðsins Refsing Einars Arnar Adolfssonar, fyrir fíkniefnasmygl, breyttist talsvert á tveimur árum. 24. febrúar 2016 19:24
„Ég er eins sáttur og það gerist miðað við aðstæður“ Einar Örn Adolfsson fékk skilorðsbundinn dóm fyrir fíkniefnasmygl í dag. Var áður dæmdur í sex ára fangelsi. Er á leið vestur um haf með ársgamla dóttur sem glímir við lungnasjúkdóm. 24. febrúar 2016 14:50