Yfirvöld í Norður-Kóreu sögðu í nótt að þeir væru tilbúnir til að sökkva flugmóðurskipinu USS Carl Vinson. Flugmóðurskipið og fylgiskip þess munu nú vera á leið til æfingar ásamt tveimur japönskum herskipum í vesturhluta Kyrrahafsins. Í dagblaði Verkamannaflokks Norður-Kóreu var flugmóðurskipinu lýst sem „ógeðslegu dýri“ og að árás á það myndi sýna mátt herafla ríkisins.
Enn fremur sagði að herinn væri tilbúinn til þess að sökkva skipinu í einni árás.
Donald
Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í byrjun mánaðarins að hann hefði ákveðið að senda flotadeild Carl Vinson í átt að Norður-Kóreu þar sem spenna hefur aukist mikið vegna kjarnorkuvopna- og eldflaugatilrauna ríkisstjórnar Kim
Jong Un.
Viðbrögðin við tilkynningunni voru góð.
Moon Sang-kyun, talsmaður varnarmálaráðuneytis Suður-Kóreu, sagði ákvörðunina merki um að Bandaríkin sýndu alvarlegu og hættulegu ástandi skilning og virðingu. Norður-Kóreumenn brugðust hins vegar illa við og hótuðu Bandaríkjamönnum kjarnorkustríði.
Svo virðist þó sem að flotadeildin hafi ekki verið á leið til
Kóreuskagans heldur hafi hún verið í heræfingum með ástralska sjóhernum.
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, segir þó að flotadeildin verði komin á svæðið
á næstu dögum.
Sjá einnig: Segjast hættir að treysta Trump Nú á þriðjudaginn heldur Norður-Kórea upp á 85 ára afmæli hers ríkisins, en afmælum hersins hefur áður verið fagnað með vopnatilraunum. Yfirvöld í Bandaríkjunum og Suður-Kóreu hafa sagt að Norður-Kórea vinni að því að sprengja kjarnorkuvopn í tilraunaskyni.
Enn sem komið er hefur einræðisríkið framkvæmt fimm kjarnorkuvopnatilraunir og vinnur að því að þróa eldflaugar sem gætu borið slík vopn til Bandaríkjanna.
Trump hefur heitið því að koma í veg fyrir að Norður-Kórea nái því markmiði og hefur ríkisstjórn hans jafnvel gefið út að hernaðaraðgerðir komi til greina. Þá hefur hann kallað eftir því að Kína, eini bandamaður Norður-Kóreu, beiti sér af meiri krafti til að stöðva vopnatilraunir nágranna sinna.
Yfirvöld í Japan óttast að Norður-Kórea búi nú þegar yfir tækni til að gera efnavopna- og jafnvel kjarnorkuvopnaárásir á Japan. Þeir hafa þegar
æft slíkar árásir með góðum árangri. Þar hafa stjórnmálamenn kallað eftir því að stjórnvöld verði sér út um vopn svo þeir gætu
gert eigin árásir á skotstaði Norður-Kóreu.
Bandarískur ríkisborgari var handtekinn í Norður-Kóreu á föstudaginn þegar hann reyndi að yfirgefa landið. Hann mun hafa verið þar í um mánuð þar sem hann hafði tekið þátt í hjálparstarfi.
Samkvæmt Yonhap fréttaveitunni frá Suður-Kóreu eru alls þrír bandarískir ríkisborgarar í haldi yfirvalda í Norður-Kóreu.