Vopnaðir sérsveitarmenn við hús á Grettisgötu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. apríl 2017 11:51 Frá vettvangi á Grettisgötu. vísir/áe
Búið er að loka Grettisgötu frá Vitastíg að Frakkastíg og eru sérsveit og lögregla með mikinn viðbúnað í götunni. Fréttamaður Stöðvar 2 sem er á staðnum segir að minnsta kosti átta vopnaða sérsveitarmenn nú bíða fyrir utan hús við götuna en þeir bæði skildi og vopn. Þá eru að minnsta sex lögreglubílar í götunni, að bílum sérsveitarinnar meðtöldum. Enginn hefur sést fara inn í húsið eða koma út úr því en ekki hafa fengist upplýsingar hjá lögreglunni um það hvaða aðgerð er í gangi.Uppfært klukkan 12:12:Aðgerðum er að ljúka á Grettisgötu og er búið að opna götuna. Enn eru þó nokkrir lögreglumenn og sérsveitarmenn á vettvangi. Rafn Hilmar Guðmundsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vildi lítið tjá sig um málið þegar blaðamaður náði tali af honum. Hann sagði enga almannahættu hafa skapast en að sérsveitin hafi verið kölluð út til að aðstoða lögregluna. Fréttamenn fréttastofu á vettvangi segja að svo virðist sem að fáir lögreglu-og sérsveitarmenn hafi farið inn í húsið og að einnig virðist sem enginn hafi verið handtekinn. Það hefur þó ekki fengist staðfest frá lögreglunni.Uppfært klukkan 13:09:Aðgerðum lauk á Grettisgötu núna um eittleytið. Enginn var handtekinn samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.Að minnsta kosti átta vopnaðir sérsveitarmenn eru á staðnum.vísir/áeGrettisgötu hefur verið lokað frá Vitastíg að Frakkastíg.vísir/áeLögreglan og sérsveitin voru með mikinn viðbúnað á Grettisgötu í dag.vísir/bb
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Erlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira