Í eldhúsi Evu: Sushi með djúpsteiktum humar og bragðmikilli chilisósu Eva Laufey skrifar 20. maí 2017 14:00 Rúllan er skreytt með lárperu, chili-majónesi og kóríander Eva Laufey
Í þættinum Í eldhúsi Evu, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum, töfra ég fram dýrindis kræsingar. Hér er uppskrift að guðdómlegu Sushi með djúpsteiktum humar og bragðmikilli chilisósu. Sushi með djúpsteiktum humar og bragðmikilli chilisósu 600 g skelflettur humar Tempura-deig Ferskur aspas, soðinn í söltu vatni í 3 mínútur Agúrka, skorin í þunnar og langar sneiðar Rauð paprika, skorin þunnar og langar sneiðar Lárpera Ferskur kóríander Chili-majónes Pikklað engifer Wasabi-mauk Sojasósa Nori-blöð Sushi-hrísgrjón 350 g sushi-hrísgrjón 7 ½ dl vatn Salt Hrísgrjónaedik 1 tsk. sykurSkolið hrísgrjónin mjög vel, mér finnst best að skola þau í góðu sigti. Það tekur svolitla stund eða um 5 – 7 mínútur. Leggið hrísgrjónin í bleyti í köldu vatni í um það bil tvær klukkustundir, skiptið um vatn 2 – 3 sinnum. Setjið hrísgrjónin út í kalt vatn í þykkbotna pott og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann þannig að rétt malli og sjóðið í 20 mínútur við lægsta suðuhita. Takið pottinn af hitanum og hafið lok á. Látið standa í 15mínútur áður en hrísgrjónin eru notuð til sushi-gerðar. Setjið hrísgrjónin í pappírsklædda ofnplötu og hellið ediksblöndu yfir (blandið saman hrísgrjónaediki og sykri). Blandið vel saman og leyfið grjónunum að kólna alveg áður en þið notið þau.Humar tempura130 g hveiti ½ tsk. lyftiduft 200 ml sódavatn Salt og pipar, um ½ tsk. samtals af hvoru DjúpsteikingarolíaBlandið öllum hráefnum saman í skál og hitið olíu í potti (um 500 ml af olíu). Þerrið humarinn afar vel svo það fari ekki umfram vökvi í deigið, dýfið humrinum varlega ofan í deigið og svo beint í olíuna. Djúpsteikið humarinn í nokkrar mínútur eða þar til hann er orðinn gullinbrúnn. Setjið humarinn beint á eldhúspappír þegar hann er tilbúinn.Chili majónes200 g japanskt majónes 2 – 3 msk. siracha-sósa Salt og piparSkvetta af límónusafaSetjið öll hráefni í skál og hrærið vel saman þar til sósan er silkimjúk. Samsetning: Dreifið hrísgrjónum yfir nori-blað og snúið strax við, setjið agúrku, aspas, humar, papriku og smávegis af kóríander ofan á nori blaðið og rúllið upp, varlega. Þegar þið hafið náð að mynda góða rúllu þá skerið þið lárperu afar þunnt sem þið skreytið rúlluna með ásamt því að dreifa vel af chili-majónesinu yfir. Njótið strax!
Eva Laufey Humar Sjávarréttir Sushi Uppskriftir Mest lesið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið